Fótbolti

Jafnt fyrir austan

Selfyssingar fagna marki fyrr í sumar.
Selfyssingar fagna marki fyrr í sumar. Vísir
Leiknir F. og Selfoss skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 12. umferðar Inkasso-deildarinnar í Fjarðabyggðarhöllinni í dag.

Jose Teodoro Tirado Garcia skoraði fyrsta mark leiksins strax á annarri mínútu og kom Selfyssingum þá yfir.

Tadas Jocys jafnaði svo metin fyrir heimamenn á 30. mínútu og þar við sat.

Þetta var annað jafntefli Leiknismanna í röð en liðið vann síðast leik þegar þeir unnu stórsigur á Haukum, 4-0, þann 12. júní. Leiknir er enn í neðsta sæti deildarinnar en nú með átta stig, einu á eftir Hugin.

Selfyssingar, sem eru í sjötta sæti deildarinnar með sextán stig, voru einnig að gera sitt annað jafntefli í röð. Síðasti sigurleikur liðsins var einnig gegn Haukum, þann 12. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×