Innlent

Jafnréttisstýra biður um skýringar ráðherra

Svavar Hávarðsson skrifar
Málið varðar rétt umgengnisforeldra beint - sem eru 90% karlar.
Málið varðar rétt umgengnisforeldra beint - sem eru 90% karlar. vísir/heiða
Jafnréttisstofa mun kalla eftir skýringum frá stjórnvöldum á skipan Ólafar Nordal innanríkisráðherra í verkefnisstjórn þriggja ráðuneyta sem fjallar um hvaða laga- og reglugerðarbreytingar eru nauðsynlegar svo hægt sé að lögfesta ákvæði í barnalög um skipta búsetu barns.

Fjórir skipa nefndina; þrjár konur og einn karl sem er ekki í anda jafnréttislaga. Málið varðar ekki síst réttindi umgengnisforeldra þar sem tæp 90 prósent eru karlar.

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir það skýrt markmið jafnréttislaga að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.

„Opinberir aðilar eiga að sjálfsögðu að ganga á undan með góðu fordæmi. Samkvæmt 15. grein jafnréttislaga ber að tilnefna bæði karl og konu. Það er svo þess sem endanlega skipar viðkomandi nefnd að sjá til þess að hún sé rétt skipuð nema að hlutlægar ástæður liggi fyrir skipaninni, til dæmis sérstök sérfræðiþekking. Það er þó erfitt að sjá að það gildi í þessu tilviki en Jafnréttisstofa mun að sjálfsögðu kalla eftir skýringum á þessari skipan mála,“ segir Kristín.

Kristín Ástgeirsdóttir
Spurð hvort skýringin á skipan nefndarinnar með ójöfnum kynjahlutföllum eigi mögulega rætur að rekja í hugsanlegan mun á skipan stjórnar, nefndar eða verkefnisstjórnar í lögum, svarar Kristín að hún fái ekki séð mun þar á.

„Það eru auðvitað vonbrigði að sjá skipan eins og þessa sem virðist ónauðsynleg. Ráðuneytin þurfa að vera betur vakandi en það er sem betur fer undantekning að sjá svona dæmi,“ segir Kristín.

Verkefnisstjórnin hefur hafið störf. Forsagan er sú að 1. september kom út skýrsla innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum. Skýrslan var unnin í kjölfar ályktunar Alþingis um að fela innanríkisráðherra að kanna með hvaða leiðum megi jafna stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barna sinna með tilliti til réttinda, skyldna og skráningar sem fylgir lögheimili barns.

Niðurstaða starfshópsins var að í ýmsum gildandi lögum, reglugerðum og reglum sé bersýnilega aðstöðumunur milli foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barna sinna og ala þau upp á tveimur heimilum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×