Skoðun

Jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Gunnar Alexander Ólafsson skrifar
Þann 1. maí nk. mun nýtt greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu taka gildi, með það að markmiði að takmarka kostnað notenda við ákveðið hámarksþak á 12 mánaða tímabili og fækka greiðslukerfum í heilbrigðisþjónustunni. Þó verður ekki öll heilbrigðisþjónusta undir þaki þessa nýja greiðsluþátttökukerfis því enn verða í gildi nokkur önnur greiðsluþátttökukerfi (fyrir lyf, þjálfun o.fl.).

Nokkur atriði þarf að staldra við í þessu nýja kerfi. Í fyrsta lagi eru þökin á hámarkskostnaði of há, en þau verða á bilinu 49.200-69.700 kr. (fer eftir notkun síðustu sex mánaða). Hámarkskostnaður aldraðra, öryrkja og barna verður lægri eða 46.467 kr. á ári. Að mínu mati eru þetta alltof háar tölur sem viðhalda ójöfnum aðgangi að heilbrigðisþjónustu.

Í öðru lagi er nýja greiðsluþátttökukerfið flókið og ógagnsætt, ólíkt því sem á við um greiðslukerfi lyfja, sem er miklu einfaldara, fyrirsjáanlegra og gagnsærra. Það getur ekki verið tilgangurinn að gera kerfið ógagnsætt og því óskiljanlegt að nýja greiðslukerfið skuli ekki vera eins uppbyggt og greiðsluþátttökukerfi fyrir lyf sem allir skilja.

Til viðbótar hinu nýja greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu er sem sé annað sér greiðslukerfi fyrir lyf, þar sem hámarkskostnaður einstaklinga er 62 þúsund á ári. Langflestir þeirra sem greiða hámarkskostnað fyrir heilbrigðisþjónustu í nýja kerfinu munu einnig greiða hámarkskostnað fyrir lyf. Því getur hámarkskostnaður einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustu og lyfja orðið á bilinu 111 til 131 þúsund krónur á 12 mánaða tímabili. Það eru alltof há mörk sem viðhalda ójöfnuði í aðgengi að heilbrigðisþjónustu, því tekjulægra fólk mun eiga í erfiðleikum með að greiða svo háar upphæðir.

Í stefnulýsingu ríkisstjórnarinnar segir m.a. um heilbrigðismál að draga skuli úr greiðsluþátttöku einstaklinga í heilbrigðisþjónustu. Ljóst er að ef þessar breytingar ganga eftir, mun heilbrigðiskostnaður vissulega lækka hjá einstaka sjúklingum sem verða fyrir miklum heilbrigðiskostnaði en á móti kemur að heilbrigðiskostnaður verulegs hluta almennings mun stórhækka.

Til viðbótar má benda á að hámarksþök á heilbrigðiskostnað á Íslandi eru miklu hærri en í Svíþjóð. Þar greiðir enginn hærra en 3.300 SEK (um 39.000 ISK) á 12 mánaða tímabili fyrir lyf og heilbrigðisþjónustu eða 1/3 af því sem Íslendingur getur þurft að greiða.

Hægt að lækka hámarksþök

Að mínu mati er lag að lækka hámarksþök einstaklinga vegna heilbrigðiskostnaðar. Ef gera á alla opinbera heilbrigðisþjónustu gjaldfrjálsa, þ.e. hlut einstaklinga, getur það kostað ríkissjóð um 7 milljarða króna á ári. Það er markmið sem ber að stefna að, því þannig næst jöfnuður í aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Til að setja upphæðina í samhengi er hún svipuð þeirri upphæð sem einstaklingar sem eiga fjármagn í skattaskjólum, þyrftu að greiða í skatt af þessum fjármagnseignum, en gera ekki í dag.

Þegar hámarksgreiðslur notenda í heilbrigðisþjónustu eru orðnar þetta háar er ósanngjarnt að deila kostnaðinum á sjúklinga í stað þess að stærri hluti heilbrigðiskostnaðar dreifist á alla skattgreiðendur eins og gert er annars staðar á Norðurlöndunum, því það felur í sér ójafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Það er hægt að lækka útgjöld einstaklinga vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu og jafnvel gera þann kostnað að engu. Allt snýst þetta um vilja.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×