Innlent

Jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg.
Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg. Vísir/E.Ól.
Starfsmönnum sendiskrifstofa Íslands erlendis fækkaði um 25 milli áranna 2007 og 2014 og raunkostnaður starfseminnar dróst saman þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Ríkisendurskoðun.

Þar kemur fram að Ríkisendurskoðun hvetji stjórnvöld til að setja sér viðmið um lágmarksfjölda útsendra starfsmanna á hverri sendiskrifstofu og ljúka úttekt á húsnæðismálum þeirra. Þá telur Ríkisendurskoðun að ávallt eigi að auglýsa lausar sendiherrastöður og að jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar.

Utanríkisráðuneytið starfrækir 22 sendiskrifstofur í 18 ríkjum.

„Hér er átt við sendiráð, fastanefndir og aðalræðisskrifstofur. Samtals voru starfsmenn sendiskrifstofanna 108 árið 2014. Tæplega helmingur voru starfsmenn sem ráðuneytið hafði sent utan til starfa en rúmlega helmingur hafði verið ráðinn ytra. Á tímabilinu 2007‒14 fækkaði útsendum starfsmönnum sendiskrifstofanna um 16 og staðarráðnum um níu.“

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að rekstrarkostnaður sendiskrifstofanna lækkaði um 3% að raungildi á árunum 2007‒13. Sé miðað við gengisþróun og þróun verðbólgu í viðkomandi ríkjum lækkaði kostnaðurinn um 30% á tímabilinu. Reksturinn hélst þó vel innan fjárheimilda sem ber að mati Ríkisendurskoðunar vott um styrka fjármálastjórn ráðuneytisins.

„Bent er á það í skýrslunni að önnur norræn ríki hafi sett sér það viðmið að þrír útsendir starfsmenn þurfi að lágmarki að starfa á hverri sendiskrifstofu. Utanríkisráðuneytið hafi ekki sett sér slíkt viðmið. Árið 2014 hafi mönnun meira en helmings íslensku sendiskrifstofanna verið undir norræna viðmiðinu. Ríkisendur­skoðun hvetur ráðuneytið til að setja sér viðmið um lágmarksfjölda útsendra starfsmanna á hverri sendiskrifstofu og skilgreina hvernig bregðast skuli við náist ekki að uppfylla það.“

Húsnæði sendiskrifstofa er ýmist í ríkiseigu eða leigt. Í skýrslunni kemur fram að húsnæðiskostnaður skrifstofanna nam 860 milljónum króna árið 2013. Stjórnvöld hafa um skeið unnið að úttekt á húsnæðismálum sendiskrifstofanna í því skyni að kanna hvort selja megi eignir og finna ódýrara húsnæði. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að ljúka þeirri vinnu hið fyrsta.

„Bent er á að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skal auglýsa laus embætti opinberlega. Lög um utanríkisþjónustu Íslands veita undanþágu frá þessu ákvæði þegar um er að ræða stöður sendiherra. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að beita sér fyrir því að þessi undanþága verði felld úr gildi. Með því móti yrði stuðlað að auknu gagnsæi og jafnræði við skipanir í stöður sendiherra.“

Á árunum 2004‒14 voru sendiherrar og sendifulltrúar nær eingöngu karlar. Kynjahlutföll voru jafnari meðal annarra háskólamenntaðra starfsmanna sendiskrifstofanna. Í jafnréttislögum segir að atvinnurekendur skuli vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustað og stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök karla- og kvennastörf. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að beita sér í þessu efni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×