Glamour

Jack O'Connell mun leika Alexander McQueen í nýrri kvikmynd

O'Connell lék stórt hlutverk í sjónvarpsþáttunum Skins.
O'Connell lék stórt hlutverk í sjónvarpsþáttunum Skins. Myndir/Getty
Verið er að gera kvikmynd um ævisögu breska fatahönnuðarins Alexander McQueen sem framdi sjálfsmorð árið 2010. Á þeim tíma var hann einn frægasti fatahönnuður heims en fatamerkið hans var bar af hvað varðar listræna og frumlega hönnun. 

Ráðið hefur verið í hlutverk Lee Alexander McQueen en það verður leikarinn Jack O'Connell sem hefur hlotnast sá heiður. O'connell er hvað þekktastur fyrir að leika í unglingaþáttaröðinni Skins. Hann er ekki aðeins líkur McQueen í útliti heldur er hann einnig vanur að leika þung hlutverk á borð við þessi. 





Alexander McQueen.





×