Golf

Jack Nicklaus fór holu í höggi | Sjáðu augnablikið

Kári Örn Hinriksson skrifar
Kevin Streelman og Ethan Couch sigruðu par-3 holu keppnina.
Kevin Streelman og Ethan Couch sigruðu par-3 holu keppnina. Getty
Það eru margar skemmtilegar hefðir í kring um Masters mótið og ein af þeim er par-3 holu keppnin sem ávalt er haldin degi fyrir mótið sjálft.

Margir þátttakendur í Masters mótinu taka þátt ásamt fyrrum sigurvegurum og öðrum þekktum nöfnum úr golfíþróttinni og stemningin í kring um mótið því oft mjög skemmtileg.

Það voru þeir Camilo Villegas og Kevin Streelman sem léku best en þeir léku holurnar níu á fimm höggum undir pari. Streelman sigraði svo í bráðabana sem var afar spennandi en kylfusveinnin hans í mótinu í dag var 13 ára strákur með ólæknandi krabbamein, Ethan Couch, sem fékk ósk sína uppfyllta um að taka þátt í Masters.

Tiger Woods mætti einnig til leiks en hann tekur sjaldnast þátt í keppninni. Hann gerði þó undantekningu á því í ár og mætti ásamt kærustu sinni Lindsey Vonn og börnunum sínum, Sam sem er sjö ára og Charlie sem er sex ára.

Gullbjörninn fór holu í höggi

Þá fékk Rory McIlroy vin sinn úr strákahljómsveitinni One Direction, Niall Horan, til þess að vera kylfusveinn fyrir sig og virtust þeir félagar skemmta sér vel.

Það var þó hinn goðsagnakenndi Jack Nicklaus sem stal senunni með því að fara holu í höggi á fjórðu holu en hann lék í holli með öðrum gömlum snillingum, Ben Crenshaw og Gary Player.

Nicklaus, eða „Gullbjörninn“ eins og hann er oftast kallaður sigraði á sínum tíma sex sinnum á Masters mótinu en lukkan virðist enn vera með honum á Augusta National.

Það sem gerir draumahögg Nicklaus enn merkilegra er sú staðreynd að í viðtali við Scott Van Pelt, íþróttafréttamann ESPN í gær, spáði hann því að hann myndi fara holu í höggi í mótinu í dag.

Masters mótið hefst svo fyrir alvöru á morgun en útsending frá Golfstöðinni hefst klukkan 19:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×