Golf

J.B. Holmes í sérflokki á fyrsta hring á Cadillac Championship

J.B. Holmes var í banastuði á fyrsta hring.
J.B. Holmes var í banastuði á fyrsta hring. Getty
Hinn högglangi J.B. Holmes var í sérflokki á fyrsta hring á Cadillac Championship sem hófst í dag en hann lék á 62 höggum eða tíu undir pari. Hann fékk ekki einn einasta skolla á Doral vellinum sem verður að teljast mikið afrek miðað við hversu erfiður hann reyndist mörgum af bestu kylfingum heims.

Heilum fjórum höggum á eftir Holmes kemur Ryan Moore á sex höggum undir pari en Alexander Levy, Rickie Fowler og Dustin Johnson deila þriðja sætinu á fjórum höggum undir pari.

Sigurvegari síðasta árs, Patrick Reed, hóf leik af krafti og var á fjórum höggum undir pari eftir fyrstu sex holurnar en eftir því sem leið á hringinn gerði hann nokkur mistök. Hann endaði á einu höggi undir pari og er í fínum málum í 14. sæti ásamt sterkum kylfingum á borð við Martin Kaymer, Jim Furyk og Bubba Watson.

Besti kylfingur heims, Rory Mcilroy, var í töluverðum vandræðum á fyrsta hring og var um tíma á fjórum höggum yfir pari en hann bætti stöðu sína undir lokinn og kláraði á 73 höggum eða einu yfir pari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×