Íslenski boltinn

Ívar Örn áfram í Víkinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Ívar Örn Jónsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Víking, en þetta staðfestir Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings, við Vísi.

Ívar Örn er tvítugur og hefur verið í lykilhlutverki í liði Víkings í sumar. Hann hefur skorað fjögur mörk í 20 leikjum í deild og bikar þetta tímabilið.

Hann gekk í raðir Víkinga frá HK í janúar í fyrra en þessi skotvissi kappi hefur spilað bæði sem vinstri bakvörður og á vinstri kantinum fyrir Víkinga.

Gamli samningur Ívars átti að renna út í lok tímabilsins en Ívar á að baki leiki með bæði U-17 og U-19 landsliði Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×