Glamour

Íþróttalína Beyonce slær í gegn

Ritstjórn skrifar
Mynd frá opnun Ivy Park í Topshop í London.
Mynd frá opnun Ivy Park í Topshop í London. Glamour/Getty
Íþróttalína söngkonunnar Beyonce, Ivy Park, hefur heldur betur slegið í gegn en þessa dagana er önnur lína fatnaðarins á leiðinni í Topshop búðir út um allan heim. 

Vinsældir Beyonce og nýju plötunnar hennar Lemonade sem og yfirstandandi tónleikatúr hennar, Formation spilar örugglega inn að íþróttalínan er að falla vel í kramið hjá kaupendum sem og að flest fötin er vel hægt að nota fyrir utan líkamsræktarsalinn. 

Hér eru nokkur flottir hlutir frá Ivy Park - en það er spurning hvort Topshop á Íslandi fái ekki þessa línu fyrir Beyonce aðdáendur hérna heima?






×