Sport

Íþróttafólkið á ÓL í Ríó verður að virða reglu númer 40

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Usain Bolt verður að passa upp á sig og sína styrktaraðila á leikunum í Ríó.
Usain Bolt verður að passa upp á sig og sína styrktaraðila á leikunum í Ríó. Vísir/Getty
Íslenskir íþróttamenn sem keppa á Ólympíuleikunum í Ríó mega ekki, alveg eins og kollegar þeirra hjá öðrum þjóðum, auglýsa styrktaraðila sína frá 27. júlí til 24. ágúst séu viðkomandi styrktaraðilar ekki hluti af opinberum styrktaraðilum leikanna.

Aðeins opinberir styrktaraðilar Ólympíuleikana í Ríó mega tengja sig við leikana á þessum tíma og  þeir hafa líka einkarétt á því að nota ákveðin orð sem vísa í Ólympíuleikana eða það að ná góðum árangri þar.

Styrktaraðilar íþróttafólksins sem eru ekki opinberir styrktaraðilar leikanna mega hvorki endurvarpa tístum né óska íþróttamönnum sínum góðs gengis á þessu tímabili.

Þeir íþróttamenn sem brjóta þessa reglu eiga á hættu að fá refsingu og í versta falli gætu þeir missti verðlaunapeninga sína. Það er þó líklegast að þeir fái áminningu, í það minnsta fyrir fyrsta brot.

Ólympíunefndir í hverju landi bera ábyrgðina á því að fylgja þessu eftir en Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur kynnt sínu íþróttafólki fyrir því sem má og má ekki á Ólympíuleikunum í Ríó sem hefst í næstu viku.

BBC skoðaði þessar reglur í sambandi við breska íþróttafólkið og birtir meðal annars lista yfir þau orð sem íþróttafólkið má ekki nota. Þetta eru ensku orðin: 2016, Rio/Rio de Janeiro, Gold, Silver, Bronze,  Medal, Effort, Performance, Challenge, Summer, Games, Sponsors, Victory og Olympian auk orðanna  Olympic,  Olympics, Olympic Games, Olympiad, Olympiads og mottó Ólympíuleikanna "Citius - Altius - Fortius" eða hærra, hraðari, sterkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×