Matur

Tíramísú: Ítalski sjarmörinn

Tíramísú
Gómsætur eftirréttur sem samanstendur af kexkökum, ostafyllingu og súkkulaði. 

4 egg

100 g sykur

400 g mascarpone ostur, við stofuhita

½ tsk vanilluduft eða vanillusykur

4 dl þeyttur rjómi

250 g kökufingur(Lady Fingers)

6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi

kakó eftir þörfum

smátt saxað súkkulaði

Aðferð:

Stífþeytið egg og sykur saman þar til þykk froða myndast.

Blandið mascarpone ostinum saman við eggjablönduna og hrærið vel.

Bætið vanillu og rjómanum varlega saman við með sleif.

Hellið upp á sterkt kaffi og setjið kaffið í skál. Veltið kökufingrunum upp úr kaffinu og raðið þeim í há glös.

Setjið 2 – 3 matskeiðar af ostablöndunni ofan á og sigtið vel af góðu kakó yfir.

Það er fullkomið að saxa niður dökkt súkkulaði og sáldra yfir réttinn í lokin. Þessi eftirréttur þarf að fá að standa í kæli í lágmark 3 klukkustundir (helst yfir nótt) áður en hann er borinn fram.

Njótið vel.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×