Fótbolti

Ítalir mæta Svíum í umspilinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ítalska landsliðið lenti í 2. sæti í sínum riðli í undankeppni HM 2018.
Ítalska landsliðið lenti í 2. sæti í sínum riðli í undankeppni HM 2018. vísir/getty
Ítalir mæta Svíum í umspili um sæti á HM í Rússlandi á næsta ári. Dregið var í Zürich í Sviss í dag.

Ítalía hefur verið með á öllum heimsmeistaramótum síðan 1962 á meðan Svíþjóð hefur ekki verið með á HM síðan 2006.

Hin Norðurlandaþjóðin í pottinum, Danmörk, mætir Írlandi í áhugaverðri viðureign.

Þá mætir Króatía Grikklandi og Sviss og N-Írland eigast við. N-Írar hafa ekki verið með á HM síðan í Mexíkó 1986.

Fyrri leikirnir fara fram 9.-11. nóvember og þeir seinni 12.-14. nóvember.

Þessi lið mætast í umspili um sæti á HM 2018:

Sviss - N-Írland

Króatía - Grikkland

Danmörk - Írland

Ítalía - Svíþjóð




Fleiri fréttir

Sjá meira


×