Viðskipti erlent

Ítalía á barmi bankakreppu

sæunn gísladóttir skrifar
Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópu.
Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópu.
Ítalska bankakerfið er að hruni komið sökum lána sem ólíklegt er að verði nokkurn tímann endurgreidd að fullu. Það sem af er ári hafa hlutabréf í stærstu bönkum landsins lækkað um allt að sjötíu prósent. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, telur þó að lausn muni finnast á málinu.

Lán í vanskilum í ítalska bankageiranum nema nú 360 milljörðum evra, jafnvirði 49.000 milljarða íslenskra króna, og eru um sautján prósent af heildarbankalánum á Ítalíu. Upphæðin nemur fimmtungi af vergri árlegri landsframleiðslu Ítalíu.

Business Insider greinir frá því að lélegu lánin hafi margfaldast frá byrjun fjármálakreppunnar árið 2008, auk þess sem ítalska hagkerfið sé ennþá átta prósentum minna en fyrir kreppuna. Hlutabréf í ítölskum bönkum hafa hríðfallið á árinu. Í gær höfðu hlutabréf í Banco Popolare lækkað um 51 prósent það sem af er ári, hlutabréf í Unicredit um 21 prósent og í Banca Monte dei Paschi di Siena um 71 prósent.

Greiningaraðilar óttast smitáhrif til annarra evrópskra banka, og að mögulega sé önnur fjármálakreppa í aðsiglingu. Leiðtogar Evrópuríkja sem funduðu í vikunni telja þó að lausn muni finnast í málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×