Innlent

Ísraelsmenn herja á MAMMÚT

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
„Það að fólk haldi að það sprengja upp börn og óbreytta borgara, á svæði þar sem meðalaldurinn er 17 ára, sé einhverskonar „erfið ákvörðun“ en jafnframt „lausn á vandamáli“ er svo snar ruglað að ég get ekki orða bundist.“ Þetta skrifar Alexandra Baldursdóttir, einn meðlima í hljómsveitinni MAMMÚT.

Meðlimir hljómsveitarinnar birtu mynd af sér á Facebook síðastliðinn laugardag með liti palestínska fánans á vöngum sér, undir merkingunni „Frjáls Palestína“. Í kjölfar þessa kom fjöldinn allur af athugasemdum frá harðorðum Ísraelsmönnum.

„Það sem verið er að skrifa þarna er í raun svo langt frá vestrænu samfélagi og því sem við þekkjum. Þarna skrifa Ísraelsmenn til dæmis að fólkið á Gasa eigi ekki skilið að lifa því það fæddist í Palestínu. Maður verður bara reiður að lesa svona og það er fullt af Íslendingum þarna sem blöskrar þessi ummæli,“ segir Alexandra í samtali við Vísi.

Forvitnilegt að fá að skyggjast inn í hugarheim fólks

Alexandra getur vart orða bundist yfir umræðunni sem þarna myndaðist í kjölfar stöðuuppfærslu þeirra, en segir þetta þó ekki hafa áhrif á skoðanir meðlima hljómsveitarinnar sem ætla að öllum líkindum að halda áfram að nota þennan vettvang til þess að viðra skoðanir sínar.

„Við höldum hvorki með Hamas né Ísrael. Við höldum með almennum mannréttindum og það sem er að gerast þarna er bara ómannúðlegt og í raun ógeðslegt,“ segir Alexandra sem er þó ánægð með að orð þeirra hafi vakið athygli í netheimum, víðs vegar um heiminn. 

„Samt sem áður erum við mjög ánægð með þessa umræðu ef eitthvað er. Það er forvitnilegt að sjá inn í hugarheim fólks sem í raun reynir að réttlæta þjóðarmorð þarna á einu bretti.“

Stöðuuppfærslu hljómsveitarinnar má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Stórskotaárásir halda áfram

Átökin á milli Ísraela og Palestínumanna halda áfram að harðna, en þrjátíu Palestínumenn hið minnsta fórust í nótt í einni stærstu stórskotaárás Ísraelshers síðan átök hófust fyrir tuttugu og tveimur dögum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×