Innlent

Ísraelsmálið mikla: Segir Dag hljóta að íhuga afsögn

Bjarki Ármannsson skrifar
Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir borgarstjóra Reykjavíkur þurfa að vinna sér inn traust á ný.
Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir borgarstjóra Reykjavíkur þurfa að vinna sér inn traust á ný. Vísir
Hildur Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hljóti að íhuga afsögn sína vegna samþykktar tillögu um viðskiptaþvingun Reykjavíkurborgar gagnvart Ísrael, sem síðar hefur verið endurskoðuð. Hún segir að mikill skaði sé skeður vegna tillögunnar og að borgarstjóri þurfi að vinna sér inn traust borgarbúa á ný.

Geti ekki staðið endalaust úti í horni

Tillagan var lögð fram af Björk Vilhelmsdóttur, fráfarandi borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, á síðasta fundi hennar í borgarráði. Hún hlaut gagnrýni úr ýmsum áttum og sagði Dagur í samtali við fréttastofu í gær að tillagan yrði dregin til baka og orðalagi hennar breytt á fundi borgarráðs í næstu viku.

Björk Vilhelmsdóttir, fráfarandi borgarfulltrúi, lagði tillöguna fram á síðasta fundi sínum.Vísir/Vilhelm
Hildur segir tillöguna hafa ollið efnahagslegum skaða og að ekkert annað dugi en að draga hana til baka með skýrum og afgerandi hætti og biðjast afsökunar.

„Það er auðvitað gott þegar þau eru komin út í horn, að þau átti sig á því að þau geti ekki staðið þar endalaust,“ segir Hildur um það að tillögunni verði breytt. „En það er þá óskandi að þau geri það með það afgerandi hætti að alþjóðasamfélagið skynji að þau meini það. Í heimi stjórnmálanna, ef maður vill vera ærlegur í afsökunarbeiðni og ærlegur í að viðurkenna að maður gerði mistök, þá auðvitað segir maður af sér. Þannig að borgarstjóri hlýtur að vera að íhuga það. Ef það er ekki vilji til að stíga það skref, þá er þetta í rauninni bara spurning um hvernig þau orða sína afsökunarbeiðni, hvort þau beri fyrir sig einhverju frekar aumu.”

Hildur var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og ræddi þar um málið ásamt þeim Ástu Guðrúnu Helgadóttur og Heiðu Kristínu Helgadóttur. Hlýða má á innslagið í spilaranum hér fyrir neðan.

Margar mismunandi fyrirsjáanlegar afleiðingar

Sem dæmi um efnahagslega hagsmuni Íslendinga sem séu í húfi nefnir Hildur kvikmyndatöku erlendra kvikmyndavera hér á landi, sem hafa skilað þjóðarbúinu miklum tekjum á undanförnum árum. Hildur bendir á að gyðingar taki stærstu ákvarðanirnar í mörgum stærstu kvikmyndaverum Hollywood og því hafi hún áhyggjur af því að sú samvinna sé í uppnámi.

„Með þessari vangaveltu er ég ekki að ala á neinum ótta, heldur bara að velta upp raunhæfum möguleika í stöðu þar sem þjóðin, í boði meirihlutans í Reykjavík, er skiljanlega búin að reita gyðinga hvar sem er í heiminum til reiði með fyrirsjáanlega mörgum mismunandi afleiðingum,“ segir Hildur.

Hún segist telja það viðeigandi að Dagur íhugi að segja af sér, jafnvel þó málið snúist aðeins um eina tillögu sem nú standi til að breyta.

„Þetta er vissulega ein tillaga, en þetta eru hinsvegar afglöp á svo stórum skala að það sýnir því miður ákveðinn valdhroka og virðingarleysi gagnvart hlutverkinu sem hann er í að leyfa sér, bæði að koma með tillögu sem fer gegn utanríkisstefnunni, án þess að spyrja Reykvíkinga eða einn né neinn, og gera það svona illa og vanhugsað,“ segir Hildur. „Samfylkingin var ekki kosin til að breyta utanríkisstefnu Íslands og að leyfa sér það, á svona vanhugsaðan hátt, er áhyggjuefni.”


Tengdar fréttir

„Mátti auðvitað búast við viðbrögðum“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hörð viðbrögð við ákvörðun borgarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael ekki hafa komið sér á óvart. Unnið sé að því að útfæra ákvörðina eins vel og hægt sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×