Menning

Íslenskur ljósmyndari vekur heimsathygli

Guðrún Ansnes skrifar
Sigga Ella notar myndavélina til að koma mikilvægum skilaboðum út í kosmósið.
Sigga Ella notar myndavélina til að koma mikilvægum skilaboðum út í kosmósið. Vísir/Ernir
Mér finnst það frábært hvað Baldvin hefur fengið mikla athygli, það eru mjög margir sem vita ekkert um sjúkdóminn,“ segir Sigga Ella, ljósmyndari.

Sigga Ella hefur fengið mikið lof í lófa meðal erlendra fjölmiðla vegna myndaseríunnar Baldvin, sem hefur nú tekist á flug í netheimum.

Um ræðir myndaþátt sem hún vann í samstarfi við Baldvin, sem eru hagsmuna- og baráttusamtök fólks með alopecia.

Þau leituðu til hennar og úr varð að hún myndaði sjö konur sem vilja meðal annars vekja athygli almennings á sjúkdómnum.

„Fjöldi erlendra miðla hefur haft samband og ég hef fengið margar fyrirspurnir,“ segir Sigga Ella og nefnir að RTL í Þýskalandi og Daily Mail muni birta myndaseríuna á næstunni.

Sigga Ella
Huffington Post hefur þegar sett myndaþáttinn í loftið og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa.

„Ég fæ mikið af póstum frá fólki sem þakkar fyrir að sýna sjúkdóminn með þessum hætti og sömuleiðis hefur skapast vettvangur í athugasemdakerfinu þar sem fólk með alopecia spjallar saman, sem er gríðarlega mikilvægt og dýrmætt.

Það er gott að finna til þess að serían geti gefið fólki aukakraft með þessum hætti.“

Sigga Ella
Aðspurð hvernig miðlarnir hafi komist á snoðir um myndaþáttinn segir hún að fyrr á árinu hafi hún sent inn myndaþáttinn Fyrst og fremst er ég, í gegnum svokallað iReport á vegum CNN, og hafi á augabragði fengið viðbrögð við þeim þætti.

 „Ég átti nú ekki von á því, það er allajafna erfitt að komast að og alls ekkert víst að maður geri það. En þeir höfðu mikinn áhuga, og fór sú sería eiginlega um allan heim líka,“ útskýrir Sigga.

Sú myndasería fjallaði um einstaklinga með Downs heilkenni og birtist til að mynda í The Metro, Daily Mail, CNN og á fleiri stöðum um allan heim. 

„Sú sería var samt gerð á eftir Baldvini, þó að hún hafi náð heimsathygli á undan,“ bendir Sigga Ella á. 

Sigga Ella
Sigga Ella hefur mikinn áhuga á fólki og málefnum og finnst gott að geta sýnt það í gegnum ljósmyndun með þeim hætti sem hún hefur verið að gera.

Hana langar mikið til að halda áfram að vekja fólk til meðvitundar um það sem oft orsakar fordóma og annað í þeim dúr. 


Tengdar fréttir

Fyrst og fremst er ég

Ljósmyndarinn Sigga Ella opnar sýningu í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×