Sport

Íslenskur knapi fluttur á sjúkrahús eftir fall

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hlé var gert á mótinu í klukkustund meðan Agnari var
Hlé var gert á mótinu í klukkustund meðan Agnari var Vísir/Bjarni Þór Sigurðsson
Íslenski knapinn Agnar Snorri Stefánsson féll af baki á fyrsta degi heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem nú fer fram í Herning í Danmörku.

Agnar, sem keppir fyrir Noreg, var að klára sýningu á 5 vetra hryssu, Hind fra Stall Ellingseter, þegar atvikið átti sér stað. Talið er að ístaðsól hafi slitnað þegar hann var að hægja niður ferðina af stökki með þeim afleiðingum af Agnar féll af baki og lenti á nálægu grindverki.

Gert var hlé á sýningu kynbótahrossa í um klukkustund á meðan hugað var að Agnari. Að sögn vitna var knapinn mjög þjáður eftir slysið og var honum gefið morfín til að slá á verkinn. Hann var því næst fluttur á nærliggjandi sjúkrahús.

Ríkey frá Flekkudal efst

Heimsmeistaramótið hófst í dag í sól og 25 stiga hita í Herning. Viðmælandi Vísis segir mótið hafa farið hægt af stað hvað keppnina áhrærir en í dag hafa kynbótahross verið byggingadæmd. Undir kvöld var svo farið að hæfileikadæma hrossin.

Fólk hefur streymt á mótið í dag  og er gert ráð fyrir 10 til 15þúsund manns þegar mótið nær hámarki um helgina og úrslit ráðast.

Það er Ríkey frá Flekkudal sem stendur efst 5 vetra hryssna og hlaut hún meðal annars 9 fyrir skeið. Það er Guðmundur Björgvinsson sem sýnir hryssuna en hann keppir fyrir Ísland.

Guðmundur Friðrik Björgvinsson á fljúgandi skeiði á Ríkey frá HelludalMynd/Jón Björnsson
Hér að neðan má sjá dómana í heild.



206)

IS2010225047 Ríkey frá Flekkudal

Litur: 3600 Jarpur/korg- einlitt

Sköpulag: 8,5 - 9,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 7,5 = 8,53

Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 8,5 = 8,35

Aðaleinkunn: 8,42

Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5

Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson

240)

DK2010201002 Sorg fra Slippen

Litur: 6600 Bleikur/álóttur einlitt

Sköpulag: 9,0 - 9,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 8,48

Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 9,0 - 8,5 - 7,0 = 8,27

Aðaleinkunn: 8,35

Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0

Sýnandi: Jóhann Rúnar Skúlason

218)

DE2010234992 Hrönn vom Kronshof

Litur: 1550 Rauður/milli- blesótt

Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,0 = 8,28

Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 6,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 8,5 = 8,27

Aðaleinkunn: 8,27

Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,5

Sýnandi: Frauke Schenzel

232)

SE2010202589 Dagstjarna från Knubbo

Litur: 2520 Brúnn/milli- stjörnótt

Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,0 = 8,35

Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,08

Aðaleinkunn: 8,19

Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5

Sýnandi: Vignir Jónasson

215)

DE2010284137 Sigyn vom Falknerhof

Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt

Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,5 = 8,18

Hæfileikar: 8,5 - 7,5 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 6,5 = 7,84

Aðaleinkunn: 7,98

Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5

Sýnandi: Þórður Þorgeirsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×