Íslenskur flugvirki slapp naumlega frá mannræningjum Valur Grettisson skrifar 29. september 2010 20:02 Caracas.
Flugvirkinn Ellert Ellertsson lenti í hryllilegri lífsreynslu í Venesúela á föstudaginn þegar þrír menn reyndu að ræna honum í höfuðborg landsins, Caracas. Ellert, sem er flugvirki hjá Icelandair, kom til landsins á föstudaginn en fyrirtækið er með þjónustusamninga þar í landi samkvæmt kvöldfréttum RÚV. Þegar Ellert var kominn á flugvöllinn beið enginn bíll eftir honum eins og vanalega. Eftir nokkra stund kom til hans maður og sagðist vera bílstjórinn hans. Ellert hringdi þá í tengilið sinn og í kjölfarið settist hann upp í bílinn og þeir óku af stað. „Síðan virðast tvær grímur hafa runnið á tengiliðinn," sagði Ellert í viðtali á RÚV í kvöld og bætti við að tengiliðurinn hefði hringt til baka. Þá hefði hann rætt stuttlega við ökumanninn. Síðan fékk Ellert símann og þá sagði tengiliðurinn einfaldlega við hann: „Dont leave the airport." „En þá var það náttúrulega of seint," sagði Ellert sem hafði þá ekið í um tíu mínútur með mönnunum. Það varð honum svo til happs að aurskriða hafði falliið á veginn sem mannræningjarnir óku. Bíllinn festist því í umferðateppu. Þá segist Ellert ekki hafa ætlað að láta bjóða sér þetta lengur og rauk út úr bílnum. Hann heimtaði farangurinn sinn og símann. Fullt af bílum voru allt í kring og fjöldinn allur af fólki. Ellert segist hafa snúið sér að hvítum manni sem ók Lexus-bifreið og sagt honum að það væri verið að ræna honum. „Þá skrúfaði hann bara upp rúðuna og ók í burtu," sagði Ellert. Mannræningjarnir reyndu að lokka hann aftur í bílinn. Þeir sögðu honum að hótelið væri rétt hjá. Ellert lét sem betur fer ekki segjast heldur náði í farangur sinn og tók leigubíl á hótelið. Síðan lét hann lögregluna vita sem rannsakar málið. Samkvæmt kvöldfréttum RÚV eru mannrán nokkuð tíð í landinu. Árlega eru um níu þúsund einstaklingum rænt. Þá hafa hraðrán færst í aukana, en þá er fólk lokkað upp í bíla og þeim rænt í kjölfarið. Svo er fjölskyldan krafin um 25 þúsund dollara eða um þrjár milljónir króna. „Maður hefur heyrt að svona sjokk komi seinna. Það verður þá bara að koma í ljós," sagði Ellert að lokum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira