Lífið

Íslenskur fasteignasali sem fer öðruvísi leiðir - Myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásdís Ósk kynnir sínar eignir listilega vel.
Ásdís Ósk kynnir sínar eignir listilega vel. vísir
Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Húsaskjól, fer heldur óhefðbundnar leiðir í því að kynna þær eignir sem hún er með á söluskrá.

Ásdís hefur sett inn nokkur myndbönd á YouTube þar sem hún kynnir viðkomandi eign. Þetta gefur þeim sem eru í fasteignahugleiðingum möguleika á því að sjá eignina á myndbandi og hvernig hún lítur út í raun og veru.

Ásdís kynnir eignina virkilega vel og fer yfir hluti eins og nærliggjandi umhverfi og hvað viðkomandi hverfi hafi upp á að bjóða.

Hér að neðan má sjá nokkur vel valinn myndbönd þar sem Ásdís fer þessa nýstárlegu leið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×