Viðskipti erlent

Íslenskur aðstoðarforstjóri Time Warner: Trump finnst samruninn ekki góð hugmynd

Hafliði Helgaon skrifar
AT&T kaupir Time Warner fyrir 13 þúsund milljarða króna. Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarforstjóri Time Warner, mun áfram starfa fyrir samsteypuna.
AT&T kaupir Time Warner fyrir 13 þúsund milljarða króna. Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarforstjóri Time Warner, mun áfram starfa fyrir samsteypuna. vísir/epa
Bandaríski fjarskiptarisinn AT&T og Time Warner hafa gert með sér samkomulag um kaup fyrrnefnda fyrirtækisins á því síðarnefnda. Heildarvirði Time Warner í þessum viðskiptum er 110 milljarðar dollara eða tæplega 13 þúsund milljarðar króna.

Samkvæmt samningnum er virði eiginfjár Time Warner 85 milljarðar dollara eða um tíu þúsund milljarðar króna. Þetta eru stærstu viðskipti ársins ef af verður, en þau eru háð samþykki stjórnvalda í Bandaríkjunum

Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarforstjóri Time Warner, segir þessi viðskipti í takti við breytingar á neysluvenjum í fjölmiðlun og afþreyingariðnaði.

„Við sjáum breytingarnar á því hvernig fólk nálgast efni og það kallar á að sníða þjónustu að þörfum hvers og eins,“ segir Ólafur Jóhann í samtali við Fréttablaðið.

Sambærileg þróun er annars staðar og er skemmst að minnast viðræðna Vodafone við 365 um kaup á hluta af starfsemi 365. Ólafur Jóhann segir fyrirséð að fólk muni nálgast sjónvarpsefni og kvikmyndir á mun fjölbreyttari hátt en áður.

Ólafur Jóhann Ólafsson segir stjórnendur Time Warner vilja stuðla að því að sameining við AT&T gangi vel.mynd/pétur már ólafsson
Góð viðskipti fyrir hluthafa

Ólafur segir AT&T ekki einungis stærsta í dreifingu sjónvarps í Bandaríkjunum, heldur einnig í breiðbandi og farsímaþjónustu. Ólafur Jóhann, sem er ábyrgur fyrir stefnu og fjárfestingum Time Warner á alþjóðavísu, segir fyrirtækið hafa unnið að því að koma efni beint til neytenda.

„Hér er verið að sameina stærsta dreifingarfyrirtækið og það sem við viljum meina að sé öflugasta fjölmiðlunarfyrirtækið.“ Meðal fyrirtækja sem heyra undir Time Warner eru fréttaveitan CNN, sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið HBO og kvikmyndaframleiðandinn Warner Bros. Ólafur Jóhann segir ekki margar efnisveitur í heiminum bjóða upp á jafn mikið af gæðamyndefni. „Það hefur verið stefna okkar undanfarin ár að fjárfesta í gæðum í framleiðslu efnis og með því laða til okkar sköpunarkraft sem fylgir mesta hæfileikafólkinu.“

Verð á hlut er 107,5 dollarar en bréfin stóðu í 79 dollurum þegar tilkynnt var um að fyrirtækin stefndu að sameiningu. „Þetta eru afskaplega góð viðskipti fyrir hluthafa okkar og við vinnum fyrir þá,“ segir Ólafur Jóhann og bendir á að fyrirtæki af þessari stærðargráðu séu í mjög dreifðri eign sjóða og einstaklinga.

Um er að ræða yfirtöku AT&T á Time Warner, en Ólafur Jóhann segir að hann reikni ekki með breytingum á sínum högum í kjölfarið. „Ég get upplýst það að ég hef skuldbundið mig til þess að vera áfram, en hvað það þýðir í árum er of snemmt að segja. Það er vilji okkar megin að þetta gangi vel og stjórnendur einhuga um að leggja sitt af mörkum til að tryggja að svo verði.“

Samruni félaganna er háður samþykki yfirvalda og reiknar Ólafur Jóhann með því að það muni taka nokkurn tíma að ganga endanlega frá samrunanum. Reiknað er með því að það geti tekið út næsta ár.

Efasemdir hafa verið um slíka samþjöppun á fjölmiðlamarkaði, en Ólafur Jóhann segir að það sé mikilvægt fyrir lýðræðið að til séu öflugir, sjálfstæðir og faglegir fjölmiðlar eins og CNN, þar sem mikið sé af fréttaefni á netinu sem ekki lúti slíkri faglegri stjórn. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa þennan samruna er Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana, en hann telur á sig hallað í fjölmiðlum.

„Donald Trump var ekki hrifinn, svona ef einhver þarf staðfestingu á því að þetta sé góð hugmynd.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×