Viðskipti innlent

Íslenskur 50 króna seðill seldist á 2,2 milljónir

Snærós Sindradóttir skrifar
Þessi seðill seldist á 2,2 milljónir króna á uppboði í Bandaríkjunum
Þessi seðill seldist á 2,2 milljónir króna á uppboði í Bandaríkjunum
50 krónu-seðill frá árinu 1904, útgefinn af Íslandsbanka, seldist á tæplega 16.500 dollara á uppboði í Chicago hjá bandaríska uppboðsfyrirtækinu Stack’s Bowers í liðinni viku. Að viðbættri uppboðsþóknun greiðir kaupandinn um 19.300 dollara fyrir þennan fallega seðil, eða rúmlega 2,2, milljónir króna. 

Einnig seldist á uppboðinu 100 króna seðill frá árinu 1927, útgefinn af Landsbanka Íslands, á um 1,6 milljónir króna, en sá seðill fór aldrei í dreifingu á sínum tíma.

Flestir á yfir tvöföldu matsverði

Þriðji seðillinn, 50 krónu seðill frá árinu 1921, fór á 800 þúsund krónur, fjórði, 10 krónu seðill frá árinu 1920, á 720 þúsund krónur og sá fimmti, 10 krónu seðill frá Landdsjoði, á 560 þúsund krónur. 

Allir umræddir seðlar fóru á allt að eða yfir tvöföldu matsverði, en þess ber að geta að upphafsverð muna á uppboðum eru allra jafna mun lægra en markaðsverð þeirra til að örva bjóðendur.

Alls seldust íslenskir seðlar á uppboðinu fyrir um tíu milljónir króna. Einnig voru boðnir upp stórriddarakross og riddarakrossar en þeir seldust á mun lægra verði, sá dýrasti á aðeins 72 þúsund krónur, en það mun vera talsvert undir gangverði.

Seldi mynt fyrir 1,1, milljarð

Uppboðsfyrirtækið Stack’s Bowers á rætur að rekja til hins áttræða fyrirtækis Stack‘s, elsta uppboðsfyrirtækis á sviði fágætra seðla og mynta í Bandaríkjunum, en það sameinaðist Bowers and Marena Auctions fyrir þremur árum síðan.

Fyrirtækið státar sig meðal annars af því að hafa boðið upp þá mynt sem selst hefur dýrustu verði í heiminum,  Flowing Hair Silver Dollar frá árinu 1794, en hún seldist á uppboði í New York á rúmlega 10 milljónir dollara í janúar í fyrra, eða rúmlega 1,1 milljarð króna.

Sala á gömlum seðlum og mynt hefur verið í miklum blóma í Bandaríkjunum og víðar í heiminum seinustu misseri, eftirspurn verið mikil og mörg met verið slegin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×