Innlent

Íslenskum ríkisborgara meinað að fara til Bandaríkjanna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Meisam Rafiei, íslenskum ríkisborgara, var meinað að fara til Bandaríkjanna í gær vegna þess að hann er fæddur í Íran
Meisam Rafiei, íslenskum ríkisborgara, var meinað að fara til Bandaríkjanna í gær vegna þess að hann er fæddur í Íran Vísir/Skjáskot
Meisam Rafiei, íslenskum ríkisborgara, var meinað að fara til Bandaríkjanna í dagvegna þess að hann er fæddur í Íran. Meisam greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.

Meisam er fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins taekwondo og þá var hann einnig Norðurlandameistari í íþróttinni á síðasta ári. Hann hafði ætlað að fara til Bandaríkjanna til að keppa fyrir hönd Íslands á opnu móti í taekwondo. Meisam er íslenskur ríkisborgari og fékk ríkisborgararétt fyrir um fimm árum síðan.

Í samtali við Vísi segir Meisam að allt hafi verið með felldu þar til á síðustu stundu. Hann hafi verið kominn um borð í flugvélina þegar starfsmaður WOW Air tilkynnti honum að hann fengi ekki að fljúga til Bandaríkjanna. Hann segist hafa verið sleginn, enda hafi hann hlakkað mikið til ferðarinnar.

Hann hefur meðal annars verið virkur í stjórnmálum hér á landi og var í 17. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir alþingiskosningarnar í október síðastliðnum.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er ein þeirra sem tjáir sig um mál Rafiei á Facebook.

„Meisam er íslenskur ríkisborgari, virkur í samfélaginu, frábær tækvondomaður og þjálfari, var á lista okkar Vinstri-grænna fyrir síðustu kosningar. Það er verið að brjóta á honum eins og öllum öðrum þeim sem fá nú ekki að fara ferða sinna vegna tilskipunar Trumps. Íslensk stjórnvöld verða að fordæma þessa tilskipun og koma því með formlegum hætti til bandarískra stjórnvalda,“ skrifar Katrín.

Ástæðan fyrir því að Rafiei fær ekki að ferðast til Bandaríkjanna er tilskipun Donalds Trump, bandaríkjaforseta um að banna komu allra ríkisborgara frá Írak, Íran, Líbýu, Sómalíu, Sýrlands, Súdan og Jemen, til landsins. Tilskipunin hefur vakið hörð viðbrögð víða um heim og í kvöldfréttum Stöðvar tvö í kvöldsagði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hana dapurlega.


Tengdar fréttir

Íslenskir þingmenn fordæma tilskipun Bandaríkjaforseta

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, mun koma áleiðis skýrum skilaboðum stjórnvalda sem fordæma tilskipun forseta Bandaríkjanna sem bannar ríkisborgurum sjö þjóða að koma til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×