Íslensku stúlkurnar áfram í gæsluvarðhaldi 18. júní 2013 11:37 Stúlkurnar voru handteknar á flugvellinum í Prag í nóvember síðastliðnum. Á myndunum til hægri má sjá hvernig kókaínið var falið í ferðatöskunum. Mynd/Vísir
Gæsluvarðhald yfir tveimur átján ára íslenskum stúlkum, sem sitja í fangelsi í Prag eftir að kókaín fannst í farangri þeirra síðastliðið haust, hefur verið framlengt fram í ágúst. Stúlkurnar voru handteknar í byrjun nóvember með nokkur kíló af kókaíni sem höfðu verið falin vandlega í ferðatöskum þeirra. Þær voru úrskurðaðar í sjö mánaða gæsluvarðhald stuttu eftir að þær voru handteknar og rann varðhaldið út nú í byrjun mánaðarins. Faðir annarar stúlkunnar sagði í samtali við fréttastofu í morgun að fjölskyldan fengi litlar sem engar upplýsingar frá lögreglunni í Prag. Þó hefði hann fengið þær fréttir á dögunum að gæsluvarðhaldið hafi verið framlengt fram í ágúst. Eina sem fjölskyldan geri nú er bara að bíða og vona að það gerist eitthvað í málinu með haustinu. Hörð viðurlög eru við smygli af þessu tagi í Tékklandi og í haust kom fram í þarlendum fjölmiðlum að þær gætu átt yfir höfði sér tíu til átján ára langt fangelsi. Faðir stúlkunnar segir að hann hafi enga tilfinningu fyrir því hversu þungan dóm þær fá, í ljósi þess hversu litlar upplýsingar hafa borist til fjölskyldunnar, en eina sem hægt sé að gera er að bíða og vona það besta. Í janúar síðastliðnum fóru foreldrar stúlkunnar í fangelsið í Prag þar sem þau hittu hana. Hann segir að vel sé hugsað um þær, þrátt fyrir að aðbúnaðurinn sé ekki upp á marga fiska. Hún sé örugg, þrátt fyrir vonda aðstöðu, eins og hann orðaði það. Stúlkurnar voru að koma frá Sao Paolo í Brasilí með viðkomu í Munchen í Þýskalandi þegar þær voru handteknar. Í Fréttablaðinu í nóvember var haft eftir lögreglunni að ljóst þyki að smyglið hafi verið þaulskipulagt af vönum glæpamönnum - það hafi meðal annars mátt sjá á því hversu vandlega efnin voru falin í töskunum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira