AG Kaupmannahöfn vann fjórtán marka sigur á botnliði Lemvig-Thyborøn, 39-25 í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld en AG var fyrir nokkru búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. AG náði því í 47 af 52 mögulegum stigum í umferðunum 26.
Íslensku leikmennirnir í AG voru rólegir í kvöld en Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru með sitthvort markið sem komu bæði í fyrri hálfleiknum. Ólafur Stefánsson og Arnór Atlason voru hinsvegar hvíldir í leiknum.
Mikkel Hansen fór á kostum og skoraði ellefu mörk. Mads Mensah Larsen var með sjö mörk og Lars T. Jørgensen skoraði fimm mörk. Markvörðurinn Dennis Bo Jensen lék sinn fyrsta leik með liðinu og varði mjög vel en hann kom inn í liðið fyrir Steinar Ege sem sleit hásin á dögunum.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira
Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26.
Meira
Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni.
Meira
Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands.
Meira
Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st...
Meira
Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ...
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,...
Meira
Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar.
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur...
Meira
Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim...
Meira
Füchse Berlin komst upp í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir þriggja marka heimasigur á SC Magdeburg í kvöld, 29-26. Füchse Berlin hefur einu stigi meira en Flensburg-Handewitt sem á l...
Meira
Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur náð að spila bæði með sterkum liðum í Danmörku og Þýskalandi undanfarin ár. Nú eru þau í Danmörku þar sem Þórey Rósa varð Evrópume...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu um helgina Evrópumeistarar í handbolta kvenna eftir sigur á franska liðinu Metz í EHF-bikarkeppninni. Liðið getur einnig orðið danskur meistari í næstu ...
Meira
Kiel getur orðið Þýskalandsmeistari í handbolta í átjánda skipti takist liðinu að leggja Rhein-Neckar Löwen að velli á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Meira
Stefán Arnarsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við Val og mun því áfram stýra liðinu í N1-deild kvenna. Hann ætlaði að hætta eftir nýliðið tímabil.
Meira