Innlent

Íslensku keppendurnir fengu góðar móttökur á Keflavíkurflugvelli

Atli Ísleifsson skrifar
Keppendurnir voru hressir og kátir með móttökurnar á Keflavíkurflugvelli
Keppendurnir voru hressir og kátir með móttökurnar á Keflavíkurflugvelli Mynd/Isavia
Íslensku keppendurnir á Special Olympics fengu góðar móttökur á Keflavíkurflugvelli þegar þeir komu aftur landsins í dag.

Alþjóðasumarleikar Special Olympics fóru fram í Los Angeles dagana 25. júlí til 3. ágúst og voru alls 41 keppandi frá Íslandi. Samtals keppa um sjö þúsund manns á leikunum sem haldnir eru fjórða hvert ár.

Íslensku keppendurnir náðu frábærum árangri á leikunum og fengu fern gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og sex bronsverðlaun.

Í tilkynningu frá Isavia segir að það hafi verið þreyttir en sælir keppendur sem gengu inn í flugstöðina á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa fengið heiðursvatnsboga yfir flugvélina frá slökkvibifreiðum Keflavíkurflugvallar. „Tekið var á móti þeim með lúðraþyt, blómum og hressandi veitingum eftir langt ferðalag frá Los Angeles.

Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hélt stutta tölu og bauð keppendurna velkomna heim og óskaði þeim til hamingju með árangurinn,“ segir í tilkynningunni.

Mynd/Isavia
.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×