Íslenski boltinn

Íslensku félögin hafa tryggt sér 196 milljónir króna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjörnumenn halda Evrópuævintýri sínu áfram eftir magnaðan sigur á Motherwell.
Stjörnumenn halda Evrópuævintýri sínu áfram eftir magnaðan sigur á Motherwell. vísir/daníel
Annað árið í röð hafa íslensk félög góðar tekjur af þátttöku sinni í Evrópukeppnunum en árangur FH og Stjörnunnar í Evrópudeildinni í ár þýðir að þau fjögur íslensku lið sem tóku þátt í Evrópukeppnunum hafa nú þegar tryggt sér 196 milljónir króna.

Íslensku liðin hafa þó ekki enn náð tekjum síðasta árs, sem fóru yfir 200 milljónir. Mestu munaði um árangur FH sem komst áfram í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu og tryggði sér þannig 112 milljónir frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA.

FH og Stjarnan eru nú þegar hvort komið með samtals 60 milljónir í öruggar tekjur fyrir að komast í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en 23 milljónir bætast við fyrir sigur í næstu umferð. Fram féll úr leik í fyrstu umferð keppninnar í ár og fékk tæpar nítján milljónir frá UEFA.

KR spilaði á móti Celtic í Meistaradeildinni.vísir/arnþór
Verðmætast er þó að komast í Meistaradeildina en Íslandsmeistarar KR fóru beint í 2. umferð forkeppninnar. Þó svo að liðið hafi þar lotið í lægra haldi fyrir Celtic fær KR engu að síður 58 milljónir frá UEFA fyrir þátttöku sína í keppninni. KR hafði einnig vænar tekjur af því að selja BBC Scotland sjónvarpsrétt leiksins en KristinnKjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segir að það hafi reynst mikill happafengur.

„Það var annar heimur en við höfum áður upplifað í þessum málum. Þetta var væn upphæð,“ segir Kristinn en vildi þó ekki gefa upp hversu mikið hafi fengist fyrir réttinn. „Það var þó ekki jafnhá upphæð og við fengum frá UEFA og nokkuð undir því. En væn engu að síður.“

FH-ingar lögðu hvítrússneska liðið Neman Grodno.vísir/arnþór
Rándýrt ferðalag til Kasakstan

Tekjurnar frá UEFA segja þó aðeins hálfa söguna því oft getur gríðarmikill ferðakostnaður fylgt þátttöku í Evrópukeppni. Eitt besta dæmið um það er ferð Breiðabliks til Kasakstan eftir að liðið dróst gegn Aktobe í fyrra.

„Sú umferð kom út í 2-3 milljóna tapi fyrir okkur,“ sagði Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, við Fréttablaðið en félagið fékk um 20 milljónir króna fyrir þátttöku sína í þriðju umferð, líkt og FH og Stjarnan nú. Borghildur sagði að félagið hefði bæði þurft að gista í München á leiðinni heim og að fara með leiguflugi þaðan til Kasakstan og til baka.

FH slapp því vel þegar ljóst var að liðið myndi mæta Elfsborg frá Svíþjóð í næstu umferð en ekki liði frá Bakú í Aserbaídsjan. „Það munaði heilmiklu fyrir okkur, ekki síst fjárhagslega,“ sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH.

Atli Jóhannsson skaut Stjörnunni áfram gegn Motherwell.vísir/daníel
Fleiri kostnaðarliðir

Stjarnan er nú að taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn en hingað til hafa ferðalög liðsins verið hagstæð – til Wales og Skotlands. Næst heldur liðið til Póllands.

Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, segir þó að ýmsir aðrir kostnaðarliðir falli til, sérstaklega fyrir lið sem eru að taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn eins og Stjarnan gerir nú.

„Til dæmis eru gerðar kröfur um ákveðnar læknisskoðanir sem kosta um eina og hálfa milljón. Það er heilmikið sem tínist til,“ sagði Almar en þess má geta að fleiri tekjuliðir bætast sömuleiðis við, eins og sala aðgangsmiða.

Formennirnir eru sammála um að tekjur af þátttöku í Evrópukeppni skipti íslensku liðin miklu máli og Almar bendir á tekjur af Evrópukeppni geti skapað ójöfnuð á milli íslensku liðanna.

„Það reyndist okkur alltaf mjög erfitt að halda í við þau lið sem tóku reglulega þátt í Evrópukeppninni,“ segir Almar. „Tekjur sem þessar hjálpa verulega til við rekstur deildarinnar og uppbyggingu til framtíðar. Því hafa þær svo mikið að segja.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×