Sport

Íslensku crossfit drottningarnar settu markið hátt fyrir aðra keppendur á The Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í keppninni í nótt.
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í keppninni í nótt. Mynd/Twittersíða The CrossFit Games
Íslensku crossfit-drottningarnar Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir háðu mikið einvígi í nótt í tilefni af því að fimmta og síðasta æfingaröðin á The Open var tilkynnt.

Katrín Tanja hafði á endanum betur eftir hörkukeppni en það munaði aðeins þremur sekúndum á stelpunum. Katrín kláraði á 6:53 mínútum en Sara á 6:56 mínútum.

Allir aðrir keppendur fá nú tíma fram á mánudaginn til þess að gera betur en þær Katrín Tanja og Sara og það verður allt annað en auðvelt fyrir þær sem reyna við það.

The Open, eða opna mótið, er fyrsta skrefið fyrir keppendur sem ætla sér að komast inn á heimsleikana í Madison í sumar en með því að klára meðal þeirra bestu í sínum hluta heimsins þá tryggir viðkomandi sér þátttökurétt á næsta stigi sem er svæðakeppni.

Undanfarnar fimm vikur hafa þátttakendur á The Open fengið að sjá æfingaröð aðfaranótt föstudags sem þeir þurfa að framkvæma og skila inn á mánudegi á heimasíðu Crossfit. Keppendur þurfa annaðhvort að taka upp æfingarnar eða fá þær staðfestar af löggiltum samstarfsaðil CrossFit samtakanna.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hefur staðið sig frábærlega í þessum æfingum og er eins og er með gott forskot á heimslistanum. Það mun síðan koma í ljós eftir að allir hafa skilið inn æfingum sínum hvort Sara vinnur The Open í ár en það verður erfitt að taka af henni toppsætið..

Íslensky stelpurnar Annie Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja  og Þuríður Erla Helgadóttir eru allar meðal efstu kvenna í keppninni en það má sjá stöðuna hér.

CrossFit hefur einnig gert upp einvígi íslensku stelpnanna í nótt á Twitter-síðu sinni og þar sést hversu litlu munaði á þeim í þessum tíu umferðum sem þær þurftu að framkvæma.

Katrín Tanja var að meðaltali 18 sekúndur að klára lyftingarnar og 22 sekúndur að klára sippið. Ragnheiður Sara  var að meðaltali 18 sekúndur að klára lyftingarnar en 23 sekúndur að klára sippið. Það munaði því bara einni sekúndu á meðaltíma íslensku crossfit drottninganna.  Hér fyrir neðan má sjá einnig upptöku frá einvígi Katrínu Tönju og Söru frá því í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×