Tónlist

Íslenskt rapplag óður til Star Wars - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ésú með nýtt lag.
Ésú með nýtt lag.
Rapparinn Ésú hef­ur gefið út nýtt mynd­band í til­efni af nýju Star Wars myndinni sem var frumsýnd þann 16 desember.

Mynd­bandið var frum­sýnt á YouTube síðu Rappsveitarinnar Rímnaríkis sem Ésú er meðlimur af en lagið ber nafnið GEIMGENGLAR og er óður til Star Wars myndina. 

Lagið samdi Joseph Cosmo Muscat en Ésú úr Rímnaríki sá um texta­gerð. Leik­stjórn mynd­bands­ins var í hönd­um Joseph Cosmo Muscat en hon­um til aðstoðar við upp­tök­ur voru Margeir Finnsson og Jón Anton. Tæknibrellur og klipping sá Ésú um. 

Mynd­bandið má sjá hér að neðan­verðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×