Erlent

Íslenskt par fann staðgöngumóður í Idaho og eignaðist tvíbura

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Parið kom hingað til lands með börnin í maí 2014. Því var synjað um skráningu barnanna í þjóðskrá.
Parið kom hingað til lands með börnin í maí 2014. Því var synjað um skráningu barnanna í þjóðskrá. vísir/getty
Íslenskt par greiddi á annan tug milljóna króna fyrir aðstoð staðgöngumóður í Idaho í Bandaríkjunum árið 2012. Parið er enn í sambandi við konuna sem fæddi því tvíbura. Konan tók að eigin sögn sjálf ekkert fyrir að ganga með börnin og ætlar að heimsækja tvíburana til Íslands þegar þeir fagna fimm ára afmæli sínu eftir þrjú ár.

Staðgöngumóðirin Amanda Byrd greinir frá þessu í viðtali við AP. Þar segist hún hafa um nokkurra ára skeið velt því fyrir sér að hjálpa fólki sem eigi í erfiðleikum með að eignast börn. Árið 2012 hafi hún haft samband við skrifstofu Circle Surrogasy í Boston með það fyrir augum að gerast staðgöngumóðir.

Hún gekk frá pappírsvinnunni, sem sneri að heilsu hennar og lagalegu umhverfi, og gat í framhaldinu valið úr hópi fólks sem var að leita að staðgöngumóður. Íslenska parið varð fyrir valinu en það hafði reynt að eignast börn í meira en áratug.

Við það að játa sig sigruð

„Við vorum við það að játa okkur sigruð, að það væri ómögulegt fyrir okkur að eignast börn. Staðgangan breytti þeirri svartsýni í von. Að tengjast Möndu (Amöndu Byrd) var það besta sem gat komið fyrir okkur,“ segir íslenska parið í samtali við AP, en það vildi ekki láta nafna þeirra getið.

Ferli sem þetta kostar allt að 150 þúsund dollara, eða ríflega 17 milljónir króna. Parið seldi því bíl sinn og flutti í minni íbúð til þess að eiga fyrir því. Þau duttu í lukkupottinn því Byrd varð ólétt af tvíburum, en þeir voru rúmar 14 merkur þegar þeir fæddust.

„Þetta virkaði. Þeir voru risa stórir, eða í kringum átta pund hver [3,6 kg]. Það er af því að þeir eru íslenskir – þeir eru víkingar,“ segir Byrd. „Þetta var ótrúleg upplifun,“ bætir hún við.

Urðu nánir vinir

Parið íslenska heimsótti Byrd tvisvar á meðan meðgöngunni stóð; í tuttugu vikna sónar og þegar tvíburarnir fæddust, og fengu að gista heima hjá fjölskyldu hennar á meðan.

„Við urðum nánir vinir og þessi tími er svo dýrmætur í hugum okkar. Mandie breytti lífi okkar að öllu leyti og við hugsum til hennar á hverjum degi,“ segir parið.

Þau þrjú hafa haldið sambandi allar götur síðan og hyggjast gera það áfram, en þau tala reglulega saman í gegnum Skype, og ætlar Byrd að heimsækja fjölskylduna þegar tvíburarnir verða fimm ára, en þeir eru tveggja ára í dag. „Við tölum um hana við tvíburana og erum mjög stolt af því. Við viljum að þeir fái að kynnast henni. Við höfum haldið sambandi og vonumst til að hittast aftur á næstu árum, því í okkar huga er Mandie hluti af fjölskyldu okkar.“

Staðgöngumæðrun ólögleg á Íslandi

Parið fór fyrir dómstóla á síðasta ári eftir að Þjóðskrá synjaði beiðni konunnar um að hún yrði skráð móðir barnanna. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi synjun Þjóðskrár úr gildi í júlí í fyrra og viðurkenndi rétt konunnar til skráningar í þjóðskrá sem móðir og forsjárforeldri barnanna, en ekki er leyfilegt að eignast barn með hjálp staðgöngumóður hér á landi. Tvö frumvörp, þar sem lagt var til að staðgöngumæðrun yrði leyfð, voru lögð fram á síðasta kjörtímabili, en náðu ekki fram að ganga.

Í dómnum segir að parið hafi komið til Íslands með börnin 21. maí 2014. Níu dögum síðar hafi verið óskað eftir skráningu þeirra í Þjóðskrá og var vísað til þess að um væri að ræða skráningu Íslendinga sem fæddir væru erlendis.

Þjóðskrá sagði hins vegar að ekki væri hægt að fallast á skráninguna því í sumum tilfellum hefði þjóðskrá ekki talið erlend fæðingarvottorð fullnægja kröfum Þjóðskrár, sér í lagi þegar börn væru fædd í ríkjum þar sem staðgöngumæðrun væri heimil.

Parið upplýsti um atvik að baki getnaði og fæðingu barnanna og bentu á að bandarískur dómstóll hefði viðurkennt þau sem foreldra að lögum og rofið fjölskyldutengsl við staðgöngumóðurina. Engu að síður var þeim synjað um skráningu og fór parið því með málið fyrir dómstóla, sem felldi ákvörðun þjóðskrár úr gildi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×