Tíska og hönnun

Íslenskt hugvit sameinað áströlskum efnivið

Guðrún Ansnes skrifar
Ragnar Kristjánsson er karlinn í brúnni. Alls starfa þrír við Börk design og er í nægu að snúast.
Ragnar Kristjánsson er karlinn í brúnni. Alls starfa þrír við Börk design og er í nægu að snúast.
Börkur design hefur hannað og framleitt sólgleraugu, sem ekki væri í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að slíkt er einsdæmi á Íslandi í dag.

Hugmyndin er íslensk en unnið er úr ástralskri hnotu og kirsuberjavið.

Ragnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri og eigandi Barkar design, kom af fjöllum þegar sérstöðu sólgleraugnanna bar á góma. „Við gerum bara akkúrat það sem okkur langar til og höfum ekki verið að velta fyrir okkur hvað aðrir eru að gera,“ segir hann kampakátur.

Ljóst þykir að hönnunarfyrirtækið hafi hitt á réttan tón því gleraugun hafa vissulega verið vinsæl.

Börkur design ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og hannar einnig armbandsúr úr hnotu og kirsuberjavið.Fréttablaðið/GVA
„Við erum komin á gott flug. Ég næ að minnsta kosti að lifa á þessu,“ segir Ragnar.

Börkur er vaxandi fyrirtæki með þrjá starfsmenn innanborðs og komst upphaflega á kortið fyrir sérstæð iPhone-hulstur.

Ferðamenn hafa verið hrifnir af vörum Barkar, en skreytingar á framleiðsluvörum fyrirtækisins hafa verið innblásnar af Íslandi.„Íslenska lopapeysumynstrið, íslenski hesturinn og hrúturinn hafa prýtt vörurnar okkar. Við höldum fast í ræturnar okkar,“ segir Ragnar sem útilokar þó ekki að færa út kvíarnar á erlendan markað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×