Viðskipti innlent

Íslenskt fyrirtæki fær inngöngu í virtan viðskiptahraðal

Sæunn Gísladóttir skrifar
Jónas Jónasson, til hægri, með þátttakendum.
Jónas Jónasson, til hægri, með þátttakendum. Fréttablaðið/Martin Bergström
Fyrirtækið Maacann & Group AB sem er í meirihlutaeigu Liam & Partnere Ehf á Íslandi hefur fengið aðgöngu í sænska viðskiptahraðalinn THINK Accelerate. „Hraðallinn er eini hraðallinn í Skandinavíu sem er með 100% árangur hjá fyrirtækjum sem hafa komið inn í hann, varðandi það að fá fjárfesta,“ segir Jónas Jónasson sem starfar hjá fyrirtækinu. Um er að ræða 12 vikna prógram þar sem sprotafyrirtæki fá aðgang að mentorum, námskeiðum, vinnustofum og kynningu á topp fjárfestum. Sex fyrirtæki hafa verið valin til þátttöku.

Fyrirtækið fær stuðning frá fjölmörgum fyrirtækjum meðal annars IBM, Amazon og Microsoft að andvirði 275 þúsund dollurum, jafnvirði 35 milljónum íslenskra króna. „Það er vel fylgst með fyrirtækjunum hérna af stærri leikmönnum á markaðnum,“ segir Jónas. „Við komum inn í þetta prógram og héldum að við værum að fá skrifstofupláss, en gerðum okkur engan vegin grein fyrir því að við vorum að fá miklu meira.“ Prógramið hófst fyrir þremur vikum síðan.

Forrit sem gefur yfirsýn yfir fyrirtækið

Maacann & Group hefur þróað forrit sem styðst við skýið sem Jónas segir jafn auðvelt að nota og snjallsíma eða spjaldtölvu. „Forritið Cirons gefur smáum og meðalstórum fyrirtækjum 100% yfirsýn yfir það sem er að gerast í fyrirtækinu. Við erum með bókhaldshluta, söluhluta, vörustjórnunarhluta, mannauðshluta og innkaupahluta,“ segir Jónas. Kerfið kemur einnig með ábendingar til notenda meðal annars um skuldir og tekjuvæntingar á næstunni. „Þetta gerir í raun sömu hluti fyrir þig og Microsoft Dynamics, en munurinn er sá að þú lærir á okkar kerfi á nokkrum mínútum, en það getur tekið nokkra mánuði að læra á Dynamics auk þess sem maður notar ekki nema 30-40% af Dynamics kerfinu nema að maður sé sérfræðingur,“ segir Jónas. Forritið þeirra er komið í beta og mun varan koma á markað þann 23. október næstkomandi.

Hér má sjá skjáskot af Cirons, forriti Maacann & Group.
Eru að leita að fjárfestum

Fjórir starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu og er Jónas eini Íslendingurinn. Hann vonar að með prógraminu finni þeir fjárfesta sem geta auðveldað þeim að koma vörunni almennileg á markað. „Það er fullt af góðum vörum þarna úti, en þær fá ekki lætin sem þær þurfa. Við erum að leita að fjárfesti sem mun auka prófílin okkar og binda um þessa síðustu hnúta, þar sem kerfið er nánast klárt,“ segir Jónas.

Búnir að þróa kerfið í fimm ár

Upphafið á kerfinu var þegar þeir byrjuðu að hanna kerfið fyrir heildsölu Jónasar árið 2010. „Við þróuðum svo kerfið í fjögur ár. Síðasta haust hugsðum við svo að þetta væri svo sterk vara að við ákváðum að setja alla okkar orku í það að klára það þannig að þetta gæti orðið áskriftartengd þjónusta til að hjálpa fyrirtækjum. Markmiðið er að gefa fyrirtækjum smáum og meðalstórum sem hafa ekki endalaust fjármagn þessa auka yfirsýn svo þeir geti einbeitt sér að því sem þeir eru góðir í,“ segir Jónas.

IBM hefur einnig sýnt fyrirtækinu áhuga en IBM hefur nýverið varið miklu fé í að fjárfesta í sprotafyrirtækjum og hefur unnið með þeim undanfarið. Jónas segir að enn eigi eftir að koma í ljós hvað það samstarf myndi fela í sér.

Töluverð erlend umfjöllun hefur verið um fyrirtækið og viðskiptahraðalinn sem lesa má hér, hér og hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×