Lífið

Íslenskt brúðkaup í beinni útsendingu á Facebook: Camilla og Rafn ganga í það heilaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þau Camilla Rut og Rafn Hlíðkvist Björgvinsson ganga í það heilaga í dag en brúðkaup þeirra fer fram í Fríkirkjunni.

Það sem vekur sérstaka athygli er að athöfnin er í beinni útsendingu á Facebook og má horfa á hana hér að neðan.

Útsendingin fer fram á Facebook-síðunni Mamie.is en Snapchatstjarnan Sólrún Diego heldur úti þeirri síðu.

Lífið óskar hjónunum til hamingju með daginn.

Uppfært klukkan 15:54 - Athöfnin var falleg og gekk allt að óskum. Henni er nú lokið en hægt er að horfa á hana í heild sinni hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×