Tónlist

Íslenskir tónlistarmenn í evrópskri tónlistarkeppni

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Leaves
Hljómsveitin Leaves
Fimm íslenskar hljómsveitir taka þátt í evrópsku tónlistarkeppninni The EuroMusic Contest 2014, en það eru hljómsveitirnar Steed Lord, Leaves, Klassart, Stafrænn Hákon og Una Stef. „Þetta er bara geggjað, það eru algjörar kanónur þarna og gaman að vera í svona flottum hópi,“ segir tónlistarkonan Una Stef um keppnina.

Una Stef rambaði óvart inn á vefsíðu keppninnar og er ánægð með að vera í flottum hópi íslenskra listamanna.vísir/gva
Keppnin virkar þannig að hver sem er getur kosið sinn eftirlætistónlistarmann á vefsíðunni euromusiccontest.com en þar er finna tónlist og upplýsingar um hljómsveitirnar. „Ég er ekki alfróð um keppnina en þeir sem fá flest atkvæði komast áfram í pott og svo komast tíu atriði í úrslit sem fara fram í París en lokakvöldinu verður streymt á netinu,“ útskýrir Una.

Hún segist í fyrstu hafa farið inn á vefsíðu keppninnar til þess að kjósa annan tónlistarmann en sá svo að kosning var ekki hafin. „Ég sá þetta á Facebook og ætlaði að kjósa hljómsveit en sá svo að kosning var ekki hafin og ákvað því að skrá mig sjálfa bara,“ segir Una létt í lundu.

Sigurvegari keppninnar fær að fara í upptökuferð til Grikklands í hið heimsfræga stúdíó, Black Rock Studios. Um er að ræða lúxus hljóðver sem minnir á paradísarhótel. Hljómsveitin One Republic hefur meðal annars tekið upp í hljóðverinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×