Fótbolti

Íslenskir tipparar duttu í lukkupottinn

Ingvi Þór Sæmunsson skrifar
Gylfi Þór skoraði sigurmark Íslands gegn Hollandi í gær.
Gylfi Þór skoraði sigurmark Íslands gegn Hollandi í gær. vísir/valli
Eins og öllum ætti að vera kunnugt um vann Ísland glæsilegan 0-1 sigur á Hollandi í undankeppni EM 2016 í Amsterdam í gær.

Hollendingar voru taldir mun sigurstranglegri fyrir leikinn en þeir Íslendingar sem tippuðu á leikinn höfðu trú á sínum mönnum og veðjuðu langflestir á sigur Íslands.

Og þeir höfðu rétt fyrir sér en Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sigur með marki úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik.

Leikurinn í gær var því sá dýrasti í sögu Íslenskra getrauna en aldrei hefur svo há upphæð verið greidd út í verðlaunafé fyrir tippara fyrir einn einstakan leik í Lengjunni og fyrir leikinn í gær.


Tengdar fréttir

Jóhann Berg: Gaman að vera liðið á toppnum

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í íslenska landsliðinu í fótbolta verja toppsæti A-riðilsins í undankeppni EM 2016 þegar sjöunda umferð riðilsins fer fram á morgun.

Hundruð milljóna fóru í ferðir á Ísland-Holland

Varlega má áætla að kostnaður við ferð í sólarhring til Amsterdam til að styðja strákana okkar í landsleiknum gegn Hollandi hafi numið minnst 100 þúsund krónum á mann. Um 3.000 Íslendingar fóru á leikinn og settu kostnaðinn ekki fyrir sig.

Strákarnir sigruðu Golíat

Með aðdáunarverðri elju, baráttu, skipulagi og gleði tókst Davíð að sigra Golíat – og það í annað sinn.

Jón Daði: Fékk gæsahúð yfir þjóðsöngnum

Jón Daði Böðvarsson var hrærður þegar blaðamaður Vísis hitti á hann að leik loknum í kvöld en hann sagði það mikil forréttindi að fá að spila með þessu liði.

Jafntefli gegn Kasakstan tryggir sæti á lokakeppni EM

Íslenska landsliðið þarf þrjú stig úr síðustu þremur leikjum sínum í undankeppni EM til þess að gulltryggja sætið á lokakeppni mótsins sem fer fram í Frakklandi næsta sumar.

Lars: Það er svo auðvelt að vinna með þessum strákum

Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins, var vissulega brosmildur eftir sigurinn á Hollandi í undankeppni EM í kvöld en þessi reyndi Svíi tók stærsta einum sigri Íslands frá upphafi á fótboltavellinum samt með sínu þjóðþekkta jafnaðargeði.

Fullt hús stiga á móti einni bestu knattspyrnuþjóð heims

Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sögulegan 1-0 sigur á Hollandi á Amsterdam Arena í gærkvöldi. Íslendingar geta farið að bóka ferðina til Frakklands næsta sumar og þau sem sungu allan tímann í stúkunni í eru farin að dreyma um að upplifa svona stundir aftur.

Birkir Bjarna: Heppnir að Robben fór af velli

Birkir Bjarnason var maðurinn á bak við sigurmarkið á móti Hollandi á Amsterdam Arena í kvöld en hann fiskaði vítið sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark leiksins úr í upphafi seinni hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×