Lífið

Íslenskir leikarar kunna að lyfta sér upp

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
myndir/úr einkasafni
Veitingastaðurinn Hverfisgötu 12 bauð leikhópi Þjóðleikhússins, sem æfir nú leikritið Sjálfstætt fólk, í heimsókn í vikunni.

Fyrra æfingatímabili leikhópsins var að ljúka og þótti því nágrönnum þeirra hinum megin við Hverfisgötuna tilvalið að gera þeim glaðan dag með mat og drykk.

Leikhópurinn þáði að sjálfsögðu boðið og var glatt á hjalla á Hverfisgötunni þann daginn eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Arnar Jónsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Feðgarnir Þorleifur Örn Arnarsson og Arnar Jónsson.
Snorri Engilbertsson, Ólafur Egill Egilsson og Lilja Nótt Þórarinsdóttir.
Glatt á hjalla hjá leikhópnum.
Arnar Jónsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Elma Stefanía Ágústsdóttir.
Þorleifur talar yfir hópinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×