Hann segir í samtali við sænska blaðið Arbetarbladet að járningamaður hafi svikið sig um að koma til þess að tálga hófa hestanna en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur það ekki veið gert í mjög langan tíma. Hann viðurkennir ennfremur að það hafi verið mistök að láta suma hestana hýrast inni í marga mánuði en augljóst er að ekki hefur verið mokað undan þeim í langan tíma.
Hann er hinsvegar afar ósáttur við viðbrögð lögreglu og dýralæknisins en fjórir hestar voru aflífaðir um leið og yfirvöld komust í málið. Hann segir að það hafi verið ónauðsynlegt og að dýrin hafi ekki verið eins illa haldin og dýralæknirinn vildi meina.
Málið hefur valdið mikilli ólgu í Sandviken en Johanson var um margra ára skeið formaður áhugamannafélags um íslenska hestinn. Félagsmenn hafa sumir gagnrýnt stjórn félagsins harðlega og sagt að í mörg ár hafi menn vitað af meðferð mannsins á dýrum sínum án þess að nokkuð væri að gert.
Tengdar greinar: |