Viðskipti innlent

Íslenskir frumkvöðlar beisla heilmyndir

Tinni Sveinsson skrifar
Drexler býr yfir heilmyndartækni þannig að notendur geta séð persónur sínar vakna til lífsins.
Drexler býr yfir heilmyndartækni þannig að notendur geta séð persónur sínar vakna til lífsins.
Viðskiptahraðall Arion banka, Startup Reykjavík, fer fram í fimmta skipti nú í sumar en tíu verkefni voru valin til þátttöku. Verkefnin verða kynnt fyrir fjárfestum með viðhöfn á morgun.

Íslenski tölvuleikurinn Drexler er eitt verkefnanna sem unnið hefur verið að í viðskiptahraðlinum í sumar. Drexler er tónlistardrifinn fjölnotendahlutverkaleikur (MMORPG) þar sem notendur búa sér til persónu og semja lög til að þróast í leiknum. Ein rúsínan í pylsuendanum er síðan heilmyndartækni sem leikurinn býr yfir þannig að notendur geta séð persónur sínar vakna til lífsins.

„Þegar þú spilar tölvuleiki eða horfir á tónlistarmyndbönd þá er bil á milli þín og afþreyingarinnar. Við viljum brúa þetta bil,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason, einn frumkvöðlanna í teyminu á bakvið Drexler. Teymið telur ellefu manns og eru meðal annars í því tónlistarmenn, grafískir hönnuðir, kvikarar og forritarar.

Sigurður mætti ásamt Starra Haukssyni í viðtal í Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem þeir útskýrðu verkefnið. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.


Leikurinn er enn á þróunarstigi og er stefnt á útgáfu í haust. Fyrsta lagið sem búið var til í Drexler er hægt að sjá hér fyrir neðan en einnig er hægt er að horfa á persónuna í myndbandinu með heilmyndagátt fyrir snjallsíma.

Sigurður segir það lítið mál að smíða heilmyndagáttina en hana er til dæmis hægt að útbúa úr gömlu geisladiskahulstri. Hér er kennslumyndband um hvernig á að föndra gáttina.

„Tónlistin er myndgerð með heilmyndatækni. Persónur í leiknum lifna við og spila tónlistina fyrir framan þig.“

Startup Reykjavík lýkur á morgun með stórum viðburði í Hvalasafninu. Níu önnur verkefni voru valin í verkefnið og verða þau einnig kynnt fjárfestum á morgun:

Platome

Framleiðir næringu fyrir stofnfrumur til að flýta fyrir þróun á stofnfrumumeðferðum.

Convex

Litríkur og fjölskylduvænn ævintýraleikur.

Strivo

Veitir þjálfurum/einkaþjálfurum tækifæri til að selja þjónustu sína á nýju og áhugaverðu sniði.

Lava Show

Mögnuð sýning þar sem alvöru bráðið hraun rennur inn í sýningarsal og yfir ís með tilheyrandi sjónarspili.

Hringborð

App sem er vettvangur fyrir stúdenta til að deila glósum og námsefni sín á milli.

Isold Film

Lána- og fjárfestingarsjóður fyrir kvikmynda og sjónvarpsgerð.

FLOW

Býður upp á aðgengilegt efni tengt hugleiðslu og vellíðan.

TotalHost

Gerir Airbnb leigusölum kleift að fá greidda söluþóknun fyrir bókaðar ferðir innanlands.

Moon Chocolate

Framleiðir hágæða súkkulaði sem er búið til frá grunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×