Menn á gulum farartækjum taka höndum saman og slökkva eld í rafgeymi.
MYND/ELÍSABET BJÖRNSDÓTTIR
BBI skrifar:
Íslenski tuktuk-inn sem þakinn er auglýsingum frá Nova gafst upp í brekkunni á neðsta hluta Hverfisgötu á fyrsta deginum sem hann eyðir á götum borgarinnar.
„Tæknin var eitthvað að stríða okkur," segir Glúmur Baldvinsson, sem ætlar að bjóða Reykvíkingum upp á nýjan ferðamáta í sumar sem venjulega gengur undir nafninu tuk-tuk. Það eru nokkurs konar þriggja hjóla, yfirbyggðar skellinöðrur.
Í dag fór fyrsti tuktuk-inn út á götur borgarinnar en hann átti enga draumabyrjun. Ekki vildi betur til en svo að eldur kom upp í rafgeymi hjólsins á leið upp Hverfisgötuna. Bílstjóri á strætisvagni sem átti leið hjá brá skjótt við og slökkti eldinn með slökkvitæki. Hann fann eflaust samkennd með þessu litla, samlita farartæki, en tuktuk-inn er gulur að lit rétt eins og strætóinn.
Að sögn Glúms var ekki um alvarlega bilun að ræða. „Einhver virðist hafa tengt einhverja víra vitlaust þarna," segir hann.
Rétt er að taka fram að þó bíllinn sé þakinn auglýsingum frá Nova kemur Nova hvergi nálægt rekstri farartækisins, fyrirtækið Tuk-tuk Iceland rekur þjónustuna. Þrír tuktuk-ar munu bruna um götur borgarinnar í sumar og flytja fólk milli staða. Gert er ráð fyrir því að þjónustan verði ókeypis fyrsta sumarið. Hjólin eru rafmagnsknúin og því grænn fararkostur. Ef vel gengur stefnir Glúmur á að stækka við sig.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Frá og með deginum í dag mun lesendum Fréttablaðsins standa til boða að fá blaðið sent í spjaldtölvu eða snjallsíma með nýju smáforriti, svokölluðu appi. Áfram verður hægt að nálgast vefútgáfu blaðsin...
Meira
"Við ætlum að stöðva öll ökutæki sem koma frá flugstöðinni,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, um átak í dag þar sem kanna á ástand bílaleigubíla.
Meira
"Við vísum alfarið á bug þeim ásökunum Ómars Stefánssonar og Rannveigar Ásgeirsdóttur að við höfum ekki unnið af heilindum í meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs,“ segir í yfirlýsingu Gunnars I. Bi...
Meira
Kveðið er á um það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að tónlist njóti sömu hvetjandi ívilnana og kvikmyndagerð hefur gert hér á landi, það er, að hluti kostnaðar ...
Meira
Aldrei stóð til að afnema sérstakt veiðigjald með einu pennastriki í sumar, segir Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr sjávarútvegsráðherra, spurður um fréttaflutning þess efnis, en alltaf var ljóst að því y...
Meira
Valdaskipti urðu í gær þegar ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við völdum. Sigmundur Davíð varð í gær yngsti forsætisráðherra í lýðveldissögunni, rétt rúmlega 38 ára gamall.
Meira
"Við vitum af þessum orðrómi og öðru slíku en það er enginn sérstakur viðbúnaður,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort...
Meira
Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar, fráfarandi atvinnu- og nýsköpunarráðherra, um að stækka verndað svæði á Faxaflóa til hvalaskoðunar.
Meira
Þerney RE 101, skip HB Granda, er á landleið eftir að hafa klárað úthafskarfakvóta sinn á tólf dögum. Hið sama á við um Örfirisey RE en hin tvö skip HB Granda sem stundað hafa úthafskarfaveiðarnar, He...
Meira
"Það liggur fyrir að ný ríkisstjórn ætlar sér að skoða álagningu veiðigjaldanna á sjávarútveginn. Það virðast uppi hugmyndir um fast gjald sem allir borga og því til viðbótar að reikna gjald til viðbó...
Meira
Ákvæði í stjórnarsáttmála Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um að til greina komi stofnun "sérstaks leiðréttingarsjóðs“ til að ríkisstjórnin nái markmiðum sínum í tengslum við skuldaleiðréttingar...
Meira
Dysnes Þróunarfélag ehf. var stofnað í gær. Félagið á að standa að uppbyggingu, markaðsstarfi og kynningu á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðarhafnarsvæði vegna þjónustu við námu- og olíuvinnslu fyrir...
Meira
Íslenskir dreifingaraðilar á vörum bera á þeim ábyrgð umfram það sem heimilt er samkvæmt Evrópulöggjöf. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent íslenska ríkinu lokaviðvörun vegna þessa.
Meira
Nýr stjórnarsáttmáli er þjóðlegri og ber meiri keim af eldri hugmyndafræði Framsóknarflokksins en Sjálfstæðisflokksins að mati sagnfræðings. Stjórnarsáttmáli síðustu ríkisstjórnar hafi verið með ítarl...
Meira
"Auðvitað er alltaf skemmtilegast að hafa sem jafnast hlut kynjanna,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýr forsætisráðherra, þegar hann var spurður út í ójafnt kynjahlutfall í nýrri ríkisstj...
Meira
Það var annasamur dagur á Bessastöðum í dag þegar stjórnarskiptin gengu í gegn. Dagurinn hófst á því að ráðherrar úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir mættu á ríkisráðsfund.
Meira
Félag var stofnað í dag um átján milljarða króna uppbyggingu hafnar á Dysnesi við Eyjafjörð til að þjóna verkefnum á Norðurslóðum. Aðstandendur vonast til að framkvæmdir hefjist á næsta ári.
Meira
Guðrún Tryggvadóttir, umhverfissinni og ritstjóri náttúra.is greindi frá því á facebook í gærkvöldi að hún hefði hágrátið yfir tíufréttunum. Umhverfismál á Íslandi næstu fjögur árin eru henni mikið áh...
Meira
Hæstiréttur staðfesti í dag að íslenska ríkið skyldi greiða manni bætur sem sætti gæsluvarðhaldi vegna skotárásar sem varð í Smáíbúðahverfinu á aðfangadag jóla árið 2010.
Meira
"Þetta er fínasti bíll, vinnur vel og gangurinn er góður í honum - eðalvagn satt best að segja,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi formaður Vinstri Grænna sem mætti á ljósbláum Volvo 14...
Meira
Nýtt ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar kom til fundar með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan þrjú í dag. Það er skipað, eins og kunnugt er, þingmönnum úr Sjálfstæð...
Meira
Ingólfur Geir Gissurarson, sem komst í gær á topp Everest, kom í dag niður í grunnbúðir. Hann er við fína heilsu. Á morgun verður haldið af stað niður úr grunnbúðum áleiðis til Lukla þaðan sem flogið ...
Meira