Tíska og hönnun

Íslenski hesturinn í aðalhlutverki í auglýsingaherferð Hermés

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Íslenski hesturinn er í aðalhlutverki í nýrri auglýsingaherferð fyrir haust- og vetrarlínu tískurisans Hermés. Herferðin heitir Metamorphosis, an Hermés story.

Margt í línunni minnir um margt á reiðmennsku en myndirnar voru teknar af ljósmyndaranum Hans Silvester. Ofurfyrirsætan Othilia Simon er stjarna herferðarinnar.

Herferðin var tekin á Íslandi og nýtur íslenskt landslag sín eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Fleiri myndir úr herferðinni má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×