Lífið

Íslenski ævintýramaðurinn sem skrifar sína eigin sögu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Arnar er mikill ævintýramaður.
Davíð Arnar er mikill ævintýramaður. vísir
Davíð Arnar Oddgeirsson lifir á því að ferðast og framleiða ævintýramyndefni allt árið um kring. Eins og Lífið greindi frá á dögunum skellti hann sér til Cape Town og myndaði það bak og fyrir. Núna hefur Davíð sett saman myndband sem sýnir bestu atvikin í ævintýrum hans undanfarna mánuði.

Davíð Arnar hefur lengi verið duglegur í myndbandagerð og sá hann til að mynda um þættina Illa Farnir á Vísi sem og Sumarlífið á síðasta ári. Hér að neðan má sjá myndbandið.

Davíð er mjög öflugur á samfélagsmiðlunum og má fylgjast með honum þar. Hann er kominn með Facebook síðu þar sem hann setur allt sitt efni inn. Svo er hann gríðarlega virkur á Snapchat og er einn af stærri snöppurum landsins.

„Á Snapchat verða hlutirnir að vera aðeins persónulegri til að fólk tengi við,“ segir Davíð  en þar deilir hann með fylgjendum sínum sögum og myndbrotum af ferðalögum og framleiðslu.

Snapchat: davidoddgeirs

Instagram: @davidoddgeirs

facebook: facebook.com/davidoddgeirs


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×