Glamour

Íslenskar fyrirsætur í nýrri herferð Fear of God x SSENSE

Ritstjórn skrifar
Brynja Guðmundsdóttir
Brynja Guðmundsdóttir GLAMOUR/SKJÁSKOT
Kanadíska verslunin SSENSE og tískumerkið Fear of God skutu nýlega herferð nýrrar línu í íslensku landslagi. Línan er samstarf þessara tveggja fyrirtækja og flíkur úr gallaefni og flannel njóta sín innan um íslensk fjöll og mosa á fyrirsætunum Brynju Guðmundsdóttur, Erlu Svanlaugu Riedel og Guðmundi Magnússyni. 

Línan er í takt við það sem hönnuður fyrirtækisins, Jerry Lorenzo,  hefur sent frá sér áður. Mikil áhersla er lögð á notagildi og að hans sögn meðal annars innblásin af Kurt Kobain.

glamour/skjáskot
glamour/skjáskot
glamour/skjáskot
glamour/skjáskot
glamour/skjáskot
glamour/skjáskot





×