Lífið

Íslenska veðrið gerði stjörnum Game of Thrones lífið leitt

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kit Harrington var hér á landi fyrr á árinu við tökur.
Kit Harrington var hér á landi fyrr á árinu við tökur. MYND/GETTY/KEARSTIN PETERSON
Kit Harrington, Liam Cunningham og fleiri stjörnur sem voru við tökur á sjónvarpsþáttunum geysivinsælu Game of Thrones fyrr á árinu urðu fyrir barðinu á íslenska veðrinu ef marka má frásagnir erlendra miðla.

Haft er eftir heimildarmönnum vefsíðunnar PageSix.com sem voru viðstaddir tökur að tökuliðið hafi þurft að glíma við allt að 25 gráðu frost og vindhraða upp á 45 metra á sekúndu.

„Leikarnir gerðu sig klára á hótelinu og var svo ekið á tökustað 90 prósent klárir í slaginn,“ segir heimildarmaðurinn PageSix. Vindurinn gerði tökuliðinu afar erfitt fyrir og segir heimildarmaðurinn að varla hafi heyrt mannsins mál fyrir vindinum.

„Það var svo mikill vindir að orðin „fuku bara“. Það þurfti allir að öskra,“ segir heimildarmaðurinn.

Tökur fóru fram á Svínafellsjökli, við Jökulsárlón og í Reynisfjöru og virðist margt benda til þess að Ísland muni leika stórt hlutverk í næstu þáttaröð þáttanna geysivinsælu sem verður sú næstsíðasta í röðinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×