Glamour

Íslenska sumarið í aðalhlutverki í haustherferð F&F

Ritstjórn skrifar
Bambi naut sín á Íslandi að þessu sinni með F&F.
Bambi naut sín á Íslandi að þessu sinni með F&F.
Breska fatakeðjan F&F ákvað að íslenskt sumar og náttúran hér væri tilvalið til að mynda nýjustu herferð keðjunnar fyrir haustið og var því fjölmennt teymi hér á landi um júní sem flakkaði um landið.

Þess má geta að Bambi, forsíðufyrirsæta Glamour í júní, er andlit F&F þetta árið og því var hún mætt aftur til Íslands í annað sinn á skömmum tíma og virtist njóta hverrar mínútu. 

Haustlína merkisins er í anda áttunda áratugarins með vínrauðri litapallettu og girnilegum munstrum í bland við flottar flíkur sem grípa ný trend eins og silki bomberjakka og svartar buxur með röndum á hliðinni. 

Skoðum aðeins myndirnar á bakvið tjöldin með F&F og Bambi. 

Selfie í sólinni.
Megum við eiga þessa úlpu? Gæti bjargað okkur á útvöldum óviðrisdögum í vetur...
Þessi strætó ..
Skóglendið á Íslandi.
Brosandi framan í vélarnar.





×