Lífið

Íslenska dómnefndin var alls ekki sammála um hvaða lag ætti að sigra í Eurovision

Birgir Olgeirsson skrifar
Holland fékk tólf stig frá íslensku dómnefndinni sem var alls ekki sammála um besta lagið. Völdu meðlimir ýmist Holland, Svíþjóð, Spán, Króatíu eða Ástralíu.
Holland fékk tólf stig frá íslensku dómnefndinni sem var alls ekki sammála um besta lagið. Völdu meðlimir ýmist Holland, Svíþjóð, Spán, Króatíu eða Ástralíu. Vísir/Getty
Dómnefnd Íslands var hreint ekki sammála um hvert væri besta lagið í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í ár.

Formaður dómnefndarinnar, Kristín Björg Þorsteinsdóttir setti framlag Svía í fyrsta sætið, Björgvin Ívar Baldursson setti Ástralíu í fyrsta sæti, Magnús Jón Kjartansson settir Spán í fyrsta sætið, Vera Hjördís Matsdóttir setti Króatíu í fyrsta sætið og setti Kristjana Stefánsdóttir Hollendinga í fyrsta sætið. Hægt er að sjá niðurstöðuna hér.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, formaður dómnefndarinnar.
Engin klíka

„Það er ekki hægt að segja að við höfum myndað einhverja klíku í kringum eitthvað lag,“ segir Kristín Björg Þorsteinsdóttir í samtali við Vísi. Dómnefndin kom saman í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins í Efstaleiti síðastliðið föstudagskvöld þar sem hún fylgdist með dómararennsli fyrir úrslit Eurovision sem fór fram síðastliðið laugardagskvöld.

Fulltrúi sýslumanns viðstaddur

Fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík sat yfir dómnefndinni til að tryggja að allt færi fram eftir settum reglum og segir Kristín Björg að fulltrúinn hafi haft á orði að hver og einn meðlimur dómnefndarinnar hefði sannarlega farið eftir eigin sannfæringu, líkt og niðurstöðurnar gefa til kynna. 

Dómnefndin vinnur þannig að hún þarf að meta hvert einasta lag og setur þau í sæti, þannig að besta lagið að mati hvers meðlims er sett í fyrsta sætið en það lakasta í síðasta sætið. Samanlögð niðurstaða ræður síðan hvaða þjóð fær tólf stig frá íslensku dómnefndinni en niðurstaðan var svona:

  • Holland 12 stig
  • Ástralía 10 stig
  • Rússland 8 stig
  • Króatía 7 stig
  • Svíþjóð 6 stig
  • Tékkland 5 stig
  • Malta 4 stig
  • Belgía 3 stig
  • Frakkland 2 stig
  • Austurríki 1 stig
Jamala fagnar hér sigri.Vísir/Getty
Úkraína fékk ekkert stig

Athygli vekur að sigurlagið 1944, sem söngkonan Jamala flutti fyrir hönd Úkraínu, fékk ekkert stig frá dómnefndinni en það fékk heldur ekkert stig úr símakosningu Íslendinga. 

Af meðlimum dómnefndarinnar var Magnús Kjartansson hvað hrifnastur af framlagi Úkraínu, setti það í sjöunda sæti, Kristín Björg setti það í ellefta sæti, Björgvin Ívar og Vera Matsdóttir settu það í tuttugasta sæti en Kristjana Stefánsdóttir setti það í 21. sæti. Samanlagt var það í 15. sæti hjá dómnefndinni, fimm sætum frá því að fá eitt stig. 

Sigur Úkraínu kom því Kristínu Björg á óvart. „Þetta var ekki það sem ég bjóst við, alls ekki.“

Mikil spenna var í kringum framlag Úkraínu. Lagið 1944 fjallar Tatara sem sovéskir hermenn fluttu nauðungarflutningum af Krímskaga undir lok seinni heimsstyrjaldarinnar á síðustu öld. Jamala tileinkaði lagið langömmu sinni og fimm börnum hennar sem voru í hópi þeirra sem fluttir voru af Krímskaga. 

Söngkonan góð en lagið náði henni ekki

Rússar höfðu farið fram á að laginu yrði vísað úr keppni í ljósi vegna þess að þeir töldu það innihalda pólitískan boðskap, sem er bannað samkvæmt reglum Eurovision. Svo fór að laginu var leyft að keppa og gáfu forsvarsmenn keppninnar þær útskýringar að texti lagsins væri byggður á sögulegum staðreyndum og var því ekki um pólitískan boðskap að ræða að þeirra mati. Rússar voru því augljóslega ekki sáttir en augljóst er að atriði Jamölu beindi sjónum að átökum á Krímskaga undanfarin ár.

Kristín Björg segir þessa spennu í kringum lagið ekki hafa haft áhrif á sig. „Ég var ekkert voðalega hrifin af þessu lagi. Mér fannst söngkonan mjög góð en lagið náði mér ekki.“

Pólski flytjandinn Michal Szpak sem flutti lagið Color Of Your Life.Vísir/Getty
Skiptar skoðanir um pólska lagið

Niðurstaða pólska framlagsins vakti mikla athygli. Eftir að niðurstöður dómnefnda höfðu verið kynntar var Póllandi aðeins með sjö stig. Lagið fékk hins vegar 222 stig úr símakosningu áhorfenda og skaust þannig upp í áttunda sæti. 

Íslenskir áhorfendur gáfu laginu 10 stig en það fékk ekkert frá íslensku dómnefndinni. 

Það voru þó skipta skoðanir um það innan íslensku dómnefndarinnar. Í heildina hafnaði lagið í 12. sæti, tveimur sætum frá því að fá 1 stig, en Kristín Björg setti það í fjórða sæti, Kristjana Stefánsdóttir setti það í 6. Sæti, Björgvin Ívar setti það í 23 sæti, Magnús Kjartansson setti það í 20. sæti og setti Vera Matsdóttir það í 16. sæti.

„Mér fannst þetta pólska lag afskaplega gott,“ segir Kristín. 

Pólverjar virðast ekki kjósa blint með sínu landi

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC hefur rýnt í niðurstöður tengdar pólska framlaginu en þar er reynt að finna út hvort samhengi sé á milli þess hvort pólskir innflytjendur í öðrum löndum Evrópu hafi greitt pólska atriðinu atkvæði. Vitnar BBC í tölur frá pólskum yfirvöldum þar sem kemur fram að þau tíu Evrópulönd sem eru með flesta pólska innflytjendur séu Þýskaland, Bretland, Austurríki, Frakkland, Ítalía, Svíþjóð, Holland, Írland, Belgía og Spánn. 

Frá öllum þessum löndum nema tveimur, Frakklandi og Spáni, fékk Pólland annað hvort 10 eða 12 stig úr símakosningu áhorfenda. Að meðaltali fékk Póllandi 9,6 stig frá þessum löndum á meðan hinar þjóðirnar í keppninni, 31 talsins, greiddu Póllandi aðeins fjögur stig að jafnaði.

BBC nefnir að Pólland hafi fengið 10 stig úr íslensku símakosningunni en BBC nefnir að Pólverjar séu stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi. BBC tekur hins vegar fram að ef að Pólverjar sem búa á víð og dreif um Evrópu hafi greitt atkvæði með pólska laginu í ár þá geri þeir það ekki í blindni. Í fyrra gekk Póllandi ekki vel í Eurovision, fékk aðeins tíu stig og hafnaði í 23. sæti. 

Lentu ekki í sömu vandræðum og danski dómarinn

Kristín Björg er annars á því að keppnin í ár hafi verið hin glæsilegasta. „Ótrúlega flott og alveg svakalega flott keppni. Þetta var rosalega flott og gekk svakalega vel,“ segir Kristín Björg en aðspurð segir hún íslensku dómnefndina ekki hafa lent í sömu vandræðum og danski dómnefndarmeðlimurinn sem misskildi stigagjöfina í ár eins og sjá má hér. 

Sjá einnig: Danskur dóm­nefndar­með­limur kunni ekki á stiga­kerfið


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×