Fótbolti

Íslensk stúlka í forgrunni í umfjöllun BBC um Þjóðadeildardráttinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Skjáskot af BBC
Litla Ísland verður með risaþjóðunum þegar dregið verður í riðla í Þjóðardeildinni í dag. Erlendir fjölmiðlar fylgjast vel með eins og Vísir og BBC er þar engin undantekning.

Ísland er ein af tólf þjóðum sem eru í A-deild Þjóðardeildarinnar og það er þegar ljóst að íslensku strákarnir verða í riðli með mjög sterkum þjóðum. Þar gætum við verið að tala um England og Þýskaland eða Spán og Frakkland.

Það er því mjög spennandi dráttur framundan í dag.

Erlendu fjölmiðlarnir eru líka á vaktinni og auðvitað hefur farið talsverður kraftur í að reyna að skýra út hvernig keppnin muni fara fram. Þjóðardeildin er nefnilega gerólík örðum keppnum sem hafa farið fram hjá fótboltalandsliðunum.

Það vekur athygli að myndin sem er notuð með útskýringafrétt þeirra BBC-manna um Þjóðardeildaina er með Ísland í aðalhlutverki.

Íslensk stúlka er nefnilega í forgrunni í aðalmyndinni með umfjöllun BBC. Á þrískipti aðalmynd fer stolti Íslendingurinn ekki framhjá neinum.

Undir myndinni er bent á það að Ísland, Wales og Norður-Írland hafi verið þrjár litlar þjóðir sem settu sitt á síðasta Evrópumót í fótbolta sem fór fram í Frakklandi sumarið 2016.



Myndin er tekin af íslensku stúlkunni uppáklæddri á landsleik Íslands en hún er mjög vel merkt Íslandi, bæði á húfu sinni sem og að hún er með íslenskan fánann málaðan á kinnina sína.

Íslenskt stuðningsfólk hefur vakið mikla athygli á síðustu stórmótum fótboltans enda hefur okkar fólk staðið sig frábærlega í stúkunni.

Víkingaklappið stal senunni á EM 2016 í Frakklandi og þá vekur það alltaf athygli þegar forsetinn okkar sleppir heiðursstúkunni en kemur sér frekar vel fyrir í miðjum stuðningshóp íslenska landsliðsins.

Það er því kannski ekkert skrýtið að íslensk stúlka sé fulltrúi stuðningsmanna liðanna í Þjóðardeildinni en á hinum hlutum myndarinnar er mynd frá drætti og af leikmanni Norður-Írlands.

Nú bíðum við spennt eftir drættinum en hann hefst klukkan 11.00 og það verður hægt að fylgjast vel með honum hér inn á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×