Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák

Vísir Innlent 08. september 2010 19:25
Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák
Ingimar Karl Helgason skrifar:

„Íslandssagan er að breytast," segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem telur að fornir taflmenn sem geymdir eru í breska þjóðminjasafninu, hafi verið skornir út hér á landi, úr rostungstönnum frá Grænlandi. Það muni breyta hugmyndum manna um íslenskar miðaldir. Guðmundur telur sig líka hver bjó mennina til.

Það var árið 1831 að yfir níutíu taflmenn, útskornir úr rostungstönnum, fundust á eyjunni Lewis, eða Ljóðhúsum, í Suðureyjum, undan ströndum skotlands. Þá kann að hafa rekið á land eftir skipbrot mörgum öldum fyrr. Þessir taflmenn eru mikið listaverk. Þeir eru taldir vera frá því um 1200. Um það er ekki deilt. En fræðimenn hafa almennt talið að þeir hefðu verið búnir til í Þrándheimi í Noregi, þar sem var erkibiskupsstjóll.

Flestir taflmannanna eru nú geymdir í British Museum og þykja miklar gersemar. Þá eru 11 þeirra geymdir í Skotlandi.

Skákbloggari New York Times, hefur fjallað um málið, og minnist á nýjar kenningar um uppruna mannanna; nefnilega þær að þeir séu íslenskir.

Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur svo vera, og vísar til þess að orðið biskup, í tengslum við skák, sé aðeins notað í íslensku, færeysku og ensku. Í öðrum Norðurlandamálum og þýsku sé notað orðið hlaupari um þennan mann. Hann telur jafnframt, með vísan til orðsins 'biskupsmát' sem finnst hér á fornum bókum, að orðið í þessari merkingu, hafi borist í ensku úr íslensku. „Það finnst í Mágus sögu frá því snemma á fjórtándu öld, en Oxford orðabókin kannast ekki við orðið biskup í tengslum við skákina í ensku fyrr en á seint á fimmtándu öld. Það er sami tími og við köllum ensku öldina," segir Guðmundur.





Guðmundur segir að Íslandssagana sé að breytast.
Guðmundur segir að Íslandssagana sé að breytast.
Guðmundur nefnir enn fremur að ólíklegt verði að teljast að taflmennirnir hafi verið búnir til undir handarjaðri erkibiskups í Þrándheimi, sé litið til stöðu biskupsins á skákborðinu. Þar sé hann settur undir kóng og drottningu og það hafi biskupinn norski varla viljað. „Erkibiskupinn fékk enda páfann til að setja Sverri konung í bann á þessum tíma," segir Guðmundur.

Hann telur samt sem áður að tenging geti verið við biskipusstól. Nefnilega þann í Skálholti hér uppi á Íslandi. Líklegt sé að Margrét haga, sem svo var kölluð, hafi skorið mennina út. Hún hafi verið þarna á tímum Páls biskups um tólfhundruð. Þess sé getið í heimildum að hún hafi listilega skorið út úr rostungstönnum. Páll hafi sjálfur verið afkomandi konunga og stoltur af upprunanum. „Í hans huga hefði biskupinn geta staðið við hlið konungsins, jafnvel á skákborðinu," segir Guðmundur.

Þær hugmyndir að Íslendingar hafi sjálfir búið taflmennina til eru ekki alveg nýjar af nálinni. Dr. Helgi Guðmundsson prófessor í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands, benti á það fyrir rúmum áratug, að taflmennirnir gætu verið íslenskir eða frá Grænlandi. Þar var þá mikil byggð norænna manna og mikill útflutningur þaðan af ýmsum varningi, eins og rostungstönnum. Helgi bendir meðal annars á að útskornir taflmenn hafi verið mun verðmætari en óunnar rostungstennur. Meginstef í kenningum Helga er að Ísland hafi á miðöldum ekki verið útnári, heldur miðstöð; miðstöð verslunar frá Grænlandi.

Guðmundur G. Þórarinsson hyggst taka þátt í málstofu um taflmennina í Skotlandi um helgina og leitast þar við að sannfæra hið erlenda fræðasamfélag um hugmyndir sínar um uppruna mannanna.

Sannfærist menn um þetta segir Guðmundur að það muni breyta Íslandssögunni. Íslendingar séu þekktir fyrir fornsögur sínar, en nú þyki sér sýnt að þeir hafi ekki síður verið í fararbroddi í útskurði, en þessir taflmenn þykja vera einar mestu gersemar sem varðveittar eru frá miðöldum í British Museum.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 06:30

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri ein...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 07:07

Lögreglan handtók þrjá menn í miðju ráni

Lögreglan handtók þrjá karlmenn í nýbyggingu við Boðaþing, skammt frá Elliðavatni í Kópavo...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:56

Loðnugangan komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði

Aðal loðnugangan er nú komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði og nálgast Hrollauglseyjar. Þa...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að dr...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. ...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudag...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu,...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Vilja skýr svör um bótaskyldu

Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum d...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák