Innlent

Íslensk kona ákærð í Ungverjalandi: Segir fórnarlambið ekki hafa mætt fyrir dómstóla

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir er lögmaður íslensku konunnar.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir er lögmaður íslensku konunnar. VÍSIR/SKJÁSKOT
Íslensk kona, sem bíður dóms í Ungverjalandi fyrir tilraun til manndráps sumarið 2012, segist vera saklaus í málinu og að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett það, en hún er sökuð um að hafa byrlað vinkonu sinni svefnlyf og barið hana tvívegis í höfuðið með hamri. Konan starfar sem læknir við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, en henni hefur verið veitt leyfi frá störfum vegna málsins.

Konan var búsett í Debrecen í Ungverjalandi, þar sem hún stundaði nám í læknisfræði en samkvæmt upplýsingum fréttastofu er konan sem sakar hana um verknaðinn nígerísk skólasystir hennar. Greint var frá málinu í kvöldfréttum RÚV í gær en atvikið átti sér stað sumarið 2012. Ákæra var gefin út síðasta vetur en dómur verður kveðinn upp í nóvember.

Fréttastofa náði tali af íslensku konunni í dag en hún er á fertugsaldri, búsett hér á landi og starfar sem læknir. Hún segir hún málið vera tilbúning og að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett verknaðinn. Undanfarin þrjú ár hafi reynst henni afar erfið en hún hefur þrisvar sinnum farið til Ung­verja­lands til þess að gefa skýrsl­ur og sitja rétt­ar­höld­in.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður konunnar, segir að meðferð máls­ins hafi verið und­ar­leg. Til að mynda hafi ungversk yf­ir­völd frestað því að kveða upp dóm þegar þau komust að því að íslensk yfirvöldu vissu af málinu.

„Skjólstæðingur minn heldur fram sakleysi sínu. Það má segja að málsatvik eins og hún lýsir þeim beri engan veginn saman við þau málsatvik sem lýst er í ákærunni. Maður verður bara að vona að réttarkerfið í Ungverjalandi finni réttláta lausn í málinu og túlki allan vafa sakborningi í vil. Það virðist vera töluverður vafi í málinu ef maður horfir á málsgögnin og rannsóknina í heild sinni,“ segir hún. 

Ingibjörg segir málið afar óvenjulegt og þungbært fyrir alla sem að því koma. Þá segir hún að meint fórnarlamb hafi ekki mætt fyrir dómstóla þegar ungversk yfirvöld óskuðu eftir því.

„Hún mætti allavega ekki í síðustu fyrirtöku og við kunnum engar skýringar á því. Nú þori ég ekki, því ég hef ekki fengið þau gögn í hendurnar, en það er sagt að hún hafi viljað draga málið til baka, en að saksóknari í Ungverjalandi hafi viljað halda málinu áfram til streitu,“ segir Ingibjörg Ólöf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×