Innlent

Íslensk börn missa tennur vegna hirðuleysis

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Algengt er að taka þurfi tennur úr allt niður í eins árs gömlum börnum hér á landi vegna slæmrar tannumhirðu. Barnatannlæknir sem starfar í Reykjavík svæfir og gerir flóknar tannaðgerðir á á þremur til fjórum börnum í viku.

Í heimildarþáttunum Junk Food Kids, sem Stöð 2 sýndi á dögunum, var fjallað um offitu barna í Bretlandi og fylgikvilla hennar. Þar kom fram að nokkuð algengt sé að ung börn fari í flóknar tannaðgerðir þar sem barnatennur eru dregnar úr þeim. Eva Guðrún Sveinsdóttir,  barnatannlæknir, segir að algengt sé að slíkar aðgerðir séu gerðar hér á landi. 

„Það er þannig á Íslandi líka. Við höfum verið að svæfa börn alveg niður í þrettán, fjórtán mánaða. Við tannlæknar vitum af þessu en almenningur kannski veit minna. Þetta er kannski ekki það sem fólk talar um í kokteilboðunum eða saumaklúbbnum en þetta er staðan á Íslandi í dag já,“ segir hún.

Eva Guðrún Sveinsdóttir barnatannlæknir.Vísir
Ekki eru til neinar opinberar tölur um tannskemmdir barna á Íslandi. Eva segir vandamálið þó algengara en fólk vill vita.

„Hjá mér, ef ég tala bara um mig persónulega en við erum tveir barnatannlæknar hérna, þá erum við kannski að svæfa þrjú, fjögur börn á viku,“ segir hún og á við börn sem eru enn með barnatennur.

Orsakirnar geta verið margar en Eva segir þó að tannheilsa snúist allaf um jafnvægi á milli tannhirðu og matarræðis. Hjá yngstu börnunum er þó algengt að slæm tannheilsa starfi af því að þau fái að sofa með ávaxtasafa eða mjólk í pela. 

„Fyrir utan það þá veldur þetta barninu verkjum og því mögulega að barnið getur ekki borðað eða sefur illa. Foreldrarnir nefna oft að þegar við erum búin að laga allar tennur eða taka þær tennur sem eru sýktar að loksins fari barnið að sofa. Þetta er miklu mikilvægara en margir halda,“ segir Eva.

Þó að tannlækningar barna hér á landi séu orðnar gjaldfrjálsar að hluta er tannheilsa íslenskra barna verri en í nágrannalöndum okkar.

„Þær tölur sem eru til þær sýna að tannskemmdir á Íslandi eru meiri en í Norðurlöndunum. Þannig að við erum verr sett en Danmörku, Noregi eða Svíþjóð,“ segir Eva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×