Viðskipti innlent

Íslensk bankalán í Noregi í hættu eftir nýtt bakslag

Ingvar Haraldsson skrifar
Norðmenn hafa lagt um 100 olíuþjónustuskipum vegna djúprar kreppu í greininni.
Norðmenn hafa lagt um 100 olíuþjónustuskipum vegna djúprar kreppu í greininni. fréttablaðið/ap
Óvissa ríkir um samkomulag sem norska skipafélagið Havila Shipping hefur gert við lánardrottna sína eftir að fyrirtækið hætti við fundi sem fara áttu fram í dag með eigendum skuldabréfa Havila. Arion banki og Íslandsbanki hafa lánað fyrirtækinu átta milljarða íslenskra króna. Félagið sérhæfir sig í þjónustu við olíuleit en djúp kreppa ríkir í greininni.

Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum, segir verulega hættu á að Havila Shipping verði gjaldþrota. Uppgefin ástæða samkomulagsins við lánardrottna, sem tilkynnt var um þann 5. janúar, var að núverandi tekjur félagsins dygðu ekki til þess að greiða af öllum lánum og ekki væri útlit fyrir að markaðsaðstæður myndu lagast á næstunni.

Olíuverð hefur fallið um 74 prósent frá sumrinu 2014, um það leyti sem Arion banki lánaði fyrirtækinu 300 milljónir norskra króna, og stendur nú í tæplega 30 dollurum á tunnu. Íslandsbanki lánaði félaginu 130 milljónir norskra króna í árslok 2013. Arion banki og Íslandsbanki hafa ekki viljað gefa upp hvaða veð, ef einhver, eru fyrir lánunum.

Samkomulagið byggði á að lengt verði í lánum og afborgunum seinkað. Eigendur skuldabréfa sem Havila hafði gefið út þurfa að samþykkja að afborgunum af skuldabréfunum verði frestað og 200 milljónir norskra króna af nýju hlutafé verði lagt í félagið, jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna, fyrir 15. mars. Þar af hyggst Sævik-fjölskyldan, stærsti eigandi félagsins, leggja félaginu til 102 milljónir norskra króna.

Í tilkynningu til Norsku kauphallarinnar sagði að óvíst væri að skuldabréfaeigendurnir samþykktu samkomulagið og því hefði verið hætt við fundina. Engu að síður væri stefnt að því að ná samkomulagi fyrir 31. janúar næstkomandi.

Hlutabréf í fyrirtækinu féllu um 8,9 prósent í gær og hafa fallið um 90 prósent síðasta árið. Félagið tapaði 88 milljónum norskra króna, jafnvirði 1,3 milljarða íslenskra króna, á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Bókfærðar eignir félagsins námu 120 milljörðum íslenskra króna í lok september. Skuldir félagsins námu þá 91 milljarði og eigið fé 29 milljörðum.

Meginþorri eigna félagsins eru 28 skip, bókfærð á 108 milljarða króna. Ketill segir illmögulegt að koma skipunum í verð um þessar mundir en búið er að leggja um 100 olíuþjónustuskipum í Noregi, um 15 prósentum heildarflotans.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×