Innlent

Íslendingur stöðvaður með umtalsvert magn stera

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem tollverðir haldleggja ólögleg efni.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem tollverðir haldleggja ólögleg efni. mynd/aðsend
Karlmaður á fertugsaldri varð nýverið uppvís að því að ætla að smygla umtalsverðu magni af meintum sterum og öðrum lyfseðilsskyldum lyfjum til landsins.

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu manninn við komu hans frá Berlín. Þeir fundu í fórum hans vel á annað þúsund ambúlur, sem innihéldu ríflega 1500 millilítra af sterum, ásamt um sex þúsund steratöflur, auk lyfja. Í tilkynningu frá tollstjóra segir að maðurinn, sem er íslenskur,hafði komið efnunum fyrir í ferðatösku sinni.

Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um fundinn og handtóku lögreglumenn manninn og færðu hann á lögreglustöð. Mál hans er í rannsókn.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem tollverðir haldleggja ólögleg efni. Hitt málið kom upp þegar þeir fundu við hefðbundna leit í gámi í skipi í Sundahöfn rúmlega tvö kiló af meintu kókaíni sem hafði verið komið fyrir í bakpoka. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það mál.

 

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×